Körfubolti

Sara Rún til Bandaríkjanna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Rún skýtur að körfunni.
Sara Rún skýtur að körfunni. vísir/valli
Sara Hún Hinriksdóttir, körfuknattleikskona í Keflavík, mun spila sína síðustu leiki á Íslandi í bili þegar Keflavík mætir Snæfell í úrslitarimmu Dominos-deildar kvenna. Sara Rún heldur til Bandaríkjanna til náms í lok sumars.

Sara Rún hefur ákveðið að fara í háskóla í Bandaríkjunum, en hún fékk skólastyrk hjá Canisius College í New York.

Liðið endaði í 9. sæti Metro Atlantic Athletic Conference, en Karfan.is greinir frá þessu.

Keflavík mætir Snæfelli í úrslitarimmu Dominos-deildar kvenna, en rimman hefst á miðvikudag með fyrsta leik í Hólminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×