Erlent

Sanders veitir Clinton stuðning sinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Hillary Clinton og Bernie Sanders.
Hillary Clinton og Bernie Sanders. Vísir/getty
Bernie Sanders hefur veitt Hillary Clinton stuðning sinn í kosningunni til embættis forseta Bandaríkjanna. Þau hafa átt í viðræðum um stuðning Sanders frá því að ljóst varð að Clinton myndi vinna Sanders í júní. Nú virðast þau hafa sameinast til þess að koma í veg fyrir að tilvondandi frambjóðandi Repúblikana, Donald Trump, verði kosinn forseti.

Clinton hefur átt í vandræðum með að ná til ungs fólks í Bandaríkjunum sem veitt hafa Sanders mikinn stuðning.

„Þessi kjörbarátta er um þarfir Bandaríkjamanna og að takast á við alvarlega vanda sem við stöndum frammi fyrir. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga að, nú þegar við nálgumst nóvember, sé Hillary Clinton langtum besti frambjóðandinn til að gera það,“ er haft eftir Sanders á vef BBC.

Hann sagði einnig að öllum ætti að vera ljóst að þau tvö hafi ekki verið sammála um mörg málefni. Hins vegar hefðu þau náð verulega saman á undanförnum vikum.

„Við erum að snúa bökum saman til þess að sigra Donald Trump,“ sagði Hillary Clinton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×