Samþykki AGS tímamót í endurreisninni 28. október 2009 19:06 Jóhanna Sigurðardóttir. Mynd/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir samþykki Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vera tímamót í efnahagslegri endurreisn landsins og muni styrkja gjaldeyrisforðann. Hún vonast til þess að næsta endurskoðun sjóðsins sem er í desember gangi vandræðalaust. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn afgreiddi í dag fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Endurskoðunin hefur tafist í átta mánuði en upphaflega stóð til að hún færi fram í febrúar á þessu ári. Bretar og Hollendingar beittu sér hins vegar gegn málinu á meðan Icesave deilan var óleyst. Skrifað var undir nýtt Icesave samkomulag í síðustu viku og í kjölfarið setti stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Ísland aftur á dagskrá. Við afgreiðsluna í dag fengu Íslendingar undanþágu frá ákvæðum um hreinan fjármagnsjöfnuð ríkissjóðs, hreinan gjaldeyrisforða Seðlabankans og endurfjármögnun viðskiptabankanna. Íslendingar fá 675 milljónir bandaríkjadala frá Norrænu ríkjunum og Póllandi og 168 milljónir dala frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Alls um eitt hundrað milljarða króna. Eins undarlega og það kann að hljóma þurftu íslendingar sem sagt að ábyrgjast 750 milljarða króna skuldbindingu vegna Icesave til að fá aðgang að 100 milljarða króna láni. Afgangurinn af þeim lánum sem Íslendingum stendur til boða á að greiðast út við næstu sjö endurskoðanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sú næsta fer fram í desember á þessu ári. Afgreiðslan í dag mun hafa jákvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf að mati sérfræðinga. Seðlabankinn getur hafið afnám gjaldeyrishafta og í kjölfarið þykir líklegt að krónan muni styrkjast. Þá telja ennfremur margir að þetta styrki tiltrú erlendra aðila á íslensku efnahagslífi.
Tengdar fréttir AGS samþykkir endurskoðun efnahagsáætlunar Endurskoðun á efnahagsáætlun Íslendinga var samþykkt á fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fimmta tímanum í dag. Því mega stjórnvöld búast við greiðslu lána frá sjóðnum á næstunni. 28. október 2009 16:48 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Sjá meira
AGS samþykkir endurskoðun efnahagsáætlunar Endurskoðun á efnahagsáætlun Íslendinga var samþykkt á fundi stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á fimmta tímanum í dag. Því mega stjórnvöld búast við greiðslu lána frá sjóðnum á næstunni. 28. október 2009 16:48