Samspil 2015: Átak í upplýsingatækni fyrir kennara á öllum skólastigum Tryggvi Thayer skrifar 2. mars 2015 10:57 Í skólastofum í dag úir og grúir af upplýsingatækni. Skólinn leggur til ýmis tæki, s.s. tölvur, skjávarpa og spjaldtölvur, en nemendur eru einnig með sína eigin snjallsíma og önnur fartæki, sem og kennararnir. Skólafólk er oft gagnrýnt fyrir að vera seint að tileinka sér tækninýjungar og nýta illa alla þá tækni sem er til staðar. Kennarar gera sér sjálfir best grein fyrir stöðu skólastarfs gagnvart upplýsingatækni. Nýlegar kannanir hafa sýnt að kennarar telja mikla vöntun á fræðslu um notkun upplýsingatækni í námi og kennslu. Það ætti ekki að koma mörgum á óvart enda hefur líftími tækniþekkingar styst verulega vegna sífellt örari tækniþróunar. Jafnvel það sem lært var fyrir ekki meira en fimm árum getur vel talist úrelt í dag. Ör tækniþróun vekur upp áleitnar spurningar varðandi fræðsluþarfir kennara. Hvernig er best að haga fræðslu fyrir kennara svo hún mæti þörfum þeirra, nemenda og samfélagsins? Ef tækniþróun heldur áfram á sömu braut og verið hefur er ljóst að þekkingarþörfinni verður ekki uppfyllt með hefðbundnum námskeiðum sem byggjast á tækniveruleika líðandi stundar. Slíkt undirbýr kennara ekki nægilega vel til að takast á við tæknilegar breytingar sem fyrirsjáanlegar eru í framtíðinni, svo sem aukin reiknigeta far- og snjalltækja, snjallúr og önnur íklæðanleg tækni og jafnvel ígræðanleg tækni. Spár um tækniþróun sem þessa byggjast ekki á getgátum. Þetta eru dæmi um tækni sem verið er að þróa í dag og munu sum þeirra einkenna tæknilegan veruleika okkar á næstu árum og hafa töluverð áhrif á skólaumhverfi. Það hlýtur því að vera ljóst að fræðsla kennara og annarra sem koma að skólastarfi þarf að taka á sig nýjar myndir. Haga þarf starfsþróun kennara þannig að þeir búi yfir þeirri þekkingu og hæfni sem þarf til að halda sér upplýstum um tækninýjungar hverju sinni.Starfssamfélög kennara á netinu Á undanförnum árum hafa kennarar nýtt sér samfélagsmiðla í síauknum mæli til að deila reynslu og þekkingu sem tengjast nýjungum og breytingum í skólastarfi. Fjölmargir hópar hafa myndað starfssamfélög á Facebook þar sem þátttakendur geta beint spurningum til samstarfsfólks og miðlað af eigin þekkingu. Í stærsta hópnum, sem ber heitið Spjaldtölvur í námi og kennslu, eru rúmlega 4.000 skráðir þátttakendur og getur verið áhugavert að fylgjast með og taka þátt í samskiptum sem þar fara fram. Á vettvangi sem þessum er ekki óalgengt að kennari varpi fram spurningu um notkunarmöguleika spjaldtölva í tilteknu samhengi og fái minnst tuttugu svör innan korters. En það er ekki bara upplýsingaflæðið sem gagnast þátttakendum því spyrjandinn hefur líka myndað tengsl við starfsfélaga sem líklegir eru til að aðstoða frekar við að þróa og innleiða nýjungar. Fyrir um tveimur árum stofnaði Menntavísindasvið HÍ, í samstarfi við fjölmarga aðila sem koma að menntamálum, Menntamiðju (www.menntamidja.is) sem hefur það hlutverk að styðja við og efla samstarf þeirra sem koma að skólamálum. Starfsemi Menntamiðju hefur til þessa snúist að miklu leyti um að rannsaka og styðja við notkun skólafólks á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook, Twitter og upplýsingabanka á netinu, til að deila upplýsingum. Auk þess hefur Menntamiðja komið að skipulagningu fjölda námskeiða og upplýsingafunda, til að mynda Menntabúðir, þar sem kennarar koma saman á óformlegum fundum og segja frá nýrri tækni og aðferðum sem þeir eru að nota í kennslu.Samspil 2015: Fræðsla um upplýsingtækni til framtíðar Nýlega fékk Menntavísindasvið HÍ styrk frá Rannís til að efla fræðslu um notkun upplýsingatækni í námi og kennslu á öllum skólastigum. Verkefnið hefur hlotið heitið Samspil 2015: UT átak Menntamiðju og er markmið þess tvíþætt. Annars vegar er stefnt að því að auka þekkingu kennara á tækniþróun og möguleikum upplýsingatækni í námi og kennslu. Hins vegar er markmiðið að ýta undir markvissa notkun skólafólks á tækni og samfélagsmiðlum fyrir eigin starfsþróun.Samspil 2015 er metnaðarfullt átak sem mun standa yfir allt árið. Boðið er upp á staðbundin námskeið á nokkrum stöðum á landinu þar sem kennarar á öllum skólastigum geta fræðst um upplýsingatækni í námi og kennslu. Einnig verður boðið upp á vefnámskeið um afmörkuð efni tengd upplýsingatækni, auk stuttra myndskeiða og annars stafræns efnis um upplýsingatækni í námi og kennslu. Umtalsverð eftirfylgni verður á samfélagsmiðlum og verða þátttakendur hvattir til að nota þá til að afla sér frekari þekkingar og miðla til annarra. Starfsþróun kennara á 21. öld kallar á samstarf allra kennara um öfluga miðlun þekkingar og reynslu. Með Samspili 2015 verður byggt á þeim grunni sem þegar hefur myndast á samfélagsmiðlum og víðar. Kennarar eru því hvatti til að kynna sér verkefnið nánar á vefsíðu þess https://samspil.menntamidja.is Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Þegar ómennskan vitnar í lög Bubbi Morthens Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Áherslur ráðherra skipta máli Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Snúum hjólunum áfram Andrés Ingi Jónsson skrifar Skoðun Búðu til pláss – fyrir öll börn Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Framlengjum séreignarleiðina til að vernda heimilin Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Líf án ótta og gjöfin í andlegri vakningu Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Kenningar úr gildi svo að kirkjan þarf að komast á annað stig Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Dansaðu vindur Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason skrifar Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir skrifar Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar Skoðun Íþróttahreyfingin og gerviverktaka Ástþór Jón Ragnheiðarson skrifar Skoðun Tölum um tilfinningar Amanda Ásdís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Óttinn við íslensku rafkrónuna Birna Guðný Björnsdóttir skrifar Skoðun Áskorun til Sjúkratrygginga Íslands – hugsum í lausnum Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Afnemum launamisrétti Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hvað hefur Ísland gert? Katla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Taugatýpísk forréttindi Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er ég og hvert er ég að fara? Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Þeir borga sem nota! Tómas Kristjánsson skrifar Skoðun Að hjálpa fólki að standa á eigin fótum Jón Þór Kristjánsson skrifar Sjá meira
Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Akureyrarbær greiðir götu kvennaathvarfs á Akureyri eins og kostur er Ásthildur Sturludóttir skrifar
Skoðun Viðhorf almennings og neytenda til sjálfbærnimála fyrirtækja og stofnana skiptir miklu máli Soffía Sigurgeirsdóttir,Trausti Haraldsson skrifar
Davíð Oddsson stendur ekki við eigin ritsjórnarstefnu - Þolir og birtir ekki gagnrýni á eigin skrif Ole Anton Bieltvedt Skoðun