Samkomulag um takmörkun á auglýsingakostnaði 24. mars 2009 13:49
Stjórnmálaflokkarnir sem eiga fulltrúa á Alþingi, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstrihreyfingin - grænt framboð hafa gert samkomulag um að takmarka auglýsingakostnað í aðdraganda alþingiskosninganna 25. apríl næstkomandi. Samkomulagið felur í sér að flokkarnir skuldbinda sig til að takmarka kostnað við auglýsingabirtingar í dagblöðum, netfjölmiðlum og ljósvakamiðlum á landsvísu. Heildarkostnaður hvers flokks vegna auglýsingabirtinga í þessum fjölmiðlum verði ekki hærri en 14 milljónir króna. Samkomulagið þessi gildir frá 30. mars 2009, þegar allir flokkar hafa lokið sínum landsfundum, til 26. apríl 2009. Jafnframt er samkomulag um að óháður aðili verði fenginn til að hafa eftirlit með framkvæmdinni. Samkomulagið á rætur að rekja til laga um starfsemi stjórnmálaflokkanna sem samþykkt voru á Alþingi árið 2006. Þar var í fyrsta sinn tekið á fjármögnun stjórnmálaflokkanna með það fyrir augum að gera fjármál þeirra opinber og gegnsæ. Þar eru settar skorður við fjáröflun flokkanna meðal lögaðila og einstaklinga en ríkisframlög hækkuð til samræmis. Sambærilegt samkomulag var gert fyrir Alþingiskosningarnar 2007 en þá var hámarksfjárhæðin 28 milljónir króna. Stjórnmálaflokkarnir sem standa að samkomulaginu telja að nú þurfi að koma enn frekari böndum á útgjöld vegna kosningabaráttunnar og því sé rétt að helminga upphæðina frá 2007. Að samkomulaginu standa Andri Óttarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Drífa Snædal framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Magnús Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, Sigfús Ingi Sigfússon framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins og Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastýra Samfylkingarinnar.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Sjá meira