Samkeppnin er allra hagur

Fréttablaðið Fastir pennar 27. janúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. Þar eru helztu nýmælin þau sem Fréttablaðið sagði frá í gær, að stofnunin beinir sjónum að birgjum og staðfestir það sem lengi hefur verið staðhæft, að þeir mismuna mjög verzlunum eftir stærð og umfangi.

Þannig borga smærri dagvöruverzlanir að jafnaði 15% hærra verð en Hagar, sem bera enn ægishjálm yfir dagvörumarkaðinn, þótt markaðshlutdeild fyrirtækisins hafi minnkað undanfarið, meðal annars vegna skilyrða sem Samkeppniseftirlitið hefur sett. Litlu búðirnar eiga enga möguleika á að vera samkeppnishæfar í verði við stóru lágvöruverðskeðjurnar.

Samkeppniseftirlitið dregur í efa að viðskiptakjör birgja til smásöluverzlana styðjist í öllum tilvikum við málefnaleg sjónarmið og telur að erfitt muni reynast að sýna fram á það, þótt ekki sé nema vegna þess að um 40% viðskiptasamninga á markaðnum séu ekki skriflegir. Það beinir því þeim tilmælum til birgjanna að þeir endurmeti verðstefnu sína og hugi að því hvort afsláttarkjörin markist af „eðlilegu magnhagræði eða samkeppnishamlandi kaupendastyrk", þ.e. hvort stærstu keðjurnar geti knúið fram óeðlilegan afslátt, á kostnað smærri verzlana.

Full ástæða er til að Samkeppniseftirlitið beiti sér gagnvart birgjunum. Stofnunin telur hins vegar ekki síður mikilvægt að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni og nefnir þar sérstaklega breytingar á búvörulögum og afnám innflutningstolla.
Eins og rakið er í skýrslu stofnunarinnar hafa stjórnvöld oftast nær látið tillögur samkeppnisyfirvalda um að efla samkeppni og frjáls viðskipti í búvörugeiranum sem vind um eyrun þjóta. Landbúnaðarráðherrar hafa áratugum saman ástundað grímulausa hagsmunagæzlu fyrir framleiðendur og afurðastöðvar í landbúnaði, á kostnað almennra neytenda.

Því miður virðist ekki ætla að verða mikil breyting á þessu, miðað við viðbrögð Steingríms J. Sigfússonar í Fréttablaðinu í dag. Er hann þó fyrsti ráðherrann sem fer bæði með samkeppnismál og landbúnaðarmál í stjórnarráðinu. Samkvæmt gamalli hefð velur hann sérhagsmunina fram yfir almannahagsmuni.

Ráðherrann réttlætir fyrirhugað aðgerðaleysi sitt með orðaleppnum fæðuöryggi, sem er oft dreginn upp þegar verja þarf einokun og viðskiptahömlur í landbúnaði. Í því ljósi er áhugavert að skoða dæmið, sem Samkeppniseftirlitið nefnir af nánast eina tilvikinu, þar sem farið var að tillögum þess og tollar á innfluttu grænmeti felldir niður, jafnframt því sem stuðningi við grænmetisbændur var breytt til að efla samkeppni. Niðurstaðan varð sú að verð á grænmeti lækkaði, hlutur innlendrar framleiðslu jókst, Íslendingar borða meira grænmeti og vöruþróun og sérhæfing í greininni jókst, sem þýðir að neytendur hafa meira úrval. Stríðir eitthvað af þessu gegn fæðuöryggi?

Það á ekki að stilla viðskiptafrelsi og samkeppni annars vegar og hagsmunum bænda og fæðuöryggi hins vegar upp sem andstæðum. Samkeppnisráðherrann hlýtur að geta komizt að skynsamlegu samkomulagi við landbúnaðarráðherrann í þessu máli.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Samkeppnin er allra hagur