Sameiginleg skylda

Vísir Fastir pennar 08. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki samkvæmt lögum að foreldrar færu sameiginlega með forsjá barns eftir skilnað eða sambúðarslit. Fjórtán árum síðar varð sameiginleg forsjá meginregla. Nú er svo komið að í 85% tilvika fara foreldrar sameiginlega með forsjá barna eftir skilnað.

Þetta er í samræmi við breytt viðhorf; annars vegar um að uppeldi og umönnun barna sé samvinnuverkefni þar sem foreldrar bera jafna ábyrgð, og hins vegar um að hagur og réttur barnsins, þar á meðal til að njóta beggja foreldra sinna, sé í fyrirrúmi.

Þetta er jákvæð þróun en breytir því ekki að enn eru til ljót dæmi um að menn annars vegar firri sig ábyrgð á börnunum sínum og að hins vegar sé foreldrum sem raunverulega vilja og geta sinnt börnunum sínum meinað að umgangast þau. Hvort tveggja felur í sér brot á rétti barnanna.

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp innanríkisráðherra til breytinga á barnalögum sem miðar að því að styrkja rétt bæði barna og foreldra í umgengnis- og forsjármálum. Þar eru ýmis mikilvæg nýmæli, ekki sízt um að foreldrum beri skylda til að leita sátta með aðstoð fagfólks áður en hægt er að krefjast úrskurðar eða höfða mál um tiltekin ágreiningsefni. Lagt er til að setja í lögin skýrari ákvæði um að í forsjármálum sé tekið tillit til þess ef annað hvort foreldrið hefur beitt fjölskylduna ofbeldi. Þá er hert á ýmsum ákvæðum sem eiga að tryggja að komið verði á umgengni milli foreldris og barns sem umgengnisréttur hefur verið brotinn á.

Frumvarpið er því mikil réttarbót. Hins vegar hefur verið gagnrýnt að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skyldi fella úr því tillögu nefndarinnar sem samdi það; að dómari skuli hafa heimild til að úrskurða að foreldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns. Eins og Karvel A. Jónsson, stjórnarmaður í Félagi um foreldrajafnrétti, benti á í grein hér í blaðinu í gær er slík heimild í lögum í hinum norrænu ríkjunum og stendur ekki til að breyta því.

Í greinargerð með frumvarpinu er raunar ýtarlegur rökstuðningur fyrir kostum þess fyrirkomulags. Vísað er til þess að slík heimild dómara geti haft jákvæð áhrif á samstarfsvilja foreldra og sporni jafnvel gegn því að annað þeirra heimti að fá eitt forsjá vegna tilfallandi deilumála. Heimildin geti þannig aukið mikilvægi og gagnsemi ráðgjafar og sáttaumleitana í forsjárdeilum.

Oft er það því miður svo að fólk leyfir sér að láta forsjárdeilur snúast um eitthvað allt annað en það sem snýr að hagsmunum barnsins – jafnvel ágætlega upplýst og skynsamt fólk að öðru leyti. Í tilvikum þar sem báðir foreldrar eru á annað borð metnir hæfir til að fara með forsjá barns og sinna þörfum þess er í raun nauðsynlegt að dómari hafi heimild til að höggva á hnútinn og segja: Hættið þessari vitleysu og sinnið foreldraskyldum ykkar í sameiningu.

Rökin fyrir því að fella þetta ákvæði út úr frumvarpinu eru furðulega rýr í greinargerðinni. Um málið eru sagðar „skiptar skoðanir" og talið rétt að „stíga varlega til jarðar". Því sé rétt að fá reynslu á hin nýju úrræði um sáttameðferð áður en lagðar séu til breytingar því hvernig stofnað skuli til sameiginlegrar forsjár.

Alþingi ætti að íhuga að setja aftur inn í frumvarpið upphaflega tillögu, einmitt til að styrkja ákvæðin um sáttameðferð. Eða fara að minnsta kosti fram á skárri rökstuðning frá ráðherranum.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Sameiginleg skylda