Fótbolti

Sálfræðingur hjá Leicester við Ísland: Hættið að láta ykkur dreyma

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslendingar fagna marki gegn Englandi á EM.
Íslendingar fagna marki gegn Englandi á EM. Vísir/Getty
Fréttastofa AP er með áhugavert viðtal við Ken Way, svokallaðan frammistöðusálfræðing [e. performance psychologist], um frammistöðu Íslands á EM í Frakklandi og margumræddan samanburð okkar manna við nýkrýnda Englandsmeistara Leicester, þar sem Way starfar.

„Ekki láta ykkur dreyma. Því um leið og það gerist þá farið þið að velta fyrir ykkur afleiðingum úrslitanna,“ voru ráðleggingar Way til íslenska landsliðsins.

Kannski að starfslið íslenska landsliðsins ætti að leggja við hlustir enda afrek Leicester eitt það magnaðasta í sögu knattspyrnunnar.

„Ef maður lætur leiða sig í gönur með pælingar um að ef við vinnum þennan leik, þá komumst við í undanúrslit, svo í úrslit og verðum svo meistarar - þá mun það draga úr manni orku og einbeitingu.“

Sjá einnig: Heimir: Við viljum enda eins og Leicester

Ísland mætir Frakklandi í 8-liða úrslitunum á Stade de France á sunnudagskvöld. Þó svo að Frakkar séu mun sigurstranglegri aðilinn, sérstaklega á heimavelli, eru fáir sem afskrifa íslenska liðið.

Leicester varð Englandsmeistari í vor.vísir/getty
Liðsandi íslenska liðsins líkur Leicester

„Maður sér víkingaviðhorf Íslendinganna. Wes Morgan [fyriliði Leicester] talaði um það í fyrra að þeir væru bræðrasveit sem væri reiðubúin að deyja hverjir fyrir aðra á vellinum. Það er liðsandi [í íslenska liðinu] sem er mjög líkur okkar.“

„Það leit út fyrir að íslenska liðið væri að skemmta sér [í leiknum gegn Englandi], allt liðið,“ sagði Way og sagði að upplifun hans af enska liðinu væri allt önnur.

„Viðbrögð þeirra snerust ekki aðeins um að tapa leiknum heldur hvaða þýðingu tapið hefði heima og hvernig gagnrýni þeir myndu fá á sig,“ sagði Way.

Hann segir einnig að leikmenn íslenska liðsins ættu að gleyma öllum vangaveltum um að frammistaða þeirra á EM gætu opnað á nýja möguleika fyrir þá.

„Ekki hugsa með ykkur að þið gætuð nú komist á samning hjá Leicester, Real Madrid eða Chelsea,“ sagði hann.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Heimir: Við viljum enda eins og Leicester

Heimir Hallgrímsson segir að hann vilji að EM-ævintýri íslenska landsliðsins fái sama farsæla endi og saga Leicester í ensku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×