Viðskipti erlent

Sakna tvö þúsund milljarða

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikil lækkun á olíuverði hefur komið verulega niður á efnahagi Nígeríu.
Mikil lækkun á olíuverði hefur komið verulega niður á efnahagi Nígeríu. Vísir/AFP
Ríkisrekna olíufyrirtækið Nigerian National Petroleum Corporation, eða NNPC, hefur komist hjá því að borga 16 milljarða dala, rúmir tvö þúsund milljarðar króna, til ríkisstjórnar Nígeríu. Opinber endurskoðun hefur leitt þetta í ljós en NNPC hefur lengi verið sakað um mikla spillingu.

Muhammadu Buhari,forseti landsins, hefur heitið því að berjast gegn spillingu. Um tveir þriðju af tekjum ríkisins koma frá olíuiðnaðinum. Mikil lækkun á olíuverði hefur komið verulega niður á efnahagi landsins.

Samkvæmt frétt BBC hefur fyrrverandi ríkisstjórn landsins verið sökuð um umfangsmikla spillingu og hurfu milljarðar af olíutekjum undir stjórn þeirra. Þegar fyrrverandi seðlabankastjóri Nígeríu benti á að gífurlega mikið af peningum vantaði, var hann rekinn úr starfi sínu.

Stjórnvöld Nígeríu tilkynntu í síðasta mánuði að NNPC yrði skipt upp í sjö smærri fyrirtæki. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×