Leikjavísir

Sækja á heimsmarkað

Samúel Karl Ólason skrifar
Þeir Guðmundur, Þorgeir, Vignir og Haukur.
Þeir Guðmundur, Þorgeir, Vignir og Haukur. Vísir
Sprotafyrirtækið Radiant Games stefnir á að gefa út leik sinn, Box Island, á heimsvísu í næsta mánuði. Leikurinn verður þýddur á fjölda tungumála en hann var gefinn út á Íslandi í ágúst. Box Island er ætlað að auðvelda krökkum að beita grunngildum forritunar og efla rökfræðilega hugsunarhátt.

Leikurinn verður þýddur á öll norrænu tungumálin sem og þau helstu í Evrópu. Vignir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Radiant Games, telur að það muni skipta miklu máli varðandi velgengni leiksins. Hingað til hefur Box Island eingöngu verið til sölu í smáforritaverslun Apple hér á landi.

Gefinn út fyrir fleiri tæki

„Við erum ekki markaðslega tilbúnir til að koma okkur á framfæri erlendis strax og erum að vinna í því núna,“ segir Vignir. Til stendur að gefa út leikinn í seinni hluta nóvember.

Þegar leikurinn var gefinn út á Íslandi virkaði hann eingöngu í iPad, spjaldtölvum Apple, en búið er að vinna í því að gera Box Island kláran fyrir fyrir iPhone snjallsíma og síma sem keyra á Android stýrikerfinu. Þá hefur einnig verið unnið að útliti leiksins og spilun hans, sem og öðru.

Börnin stóðu sig vel

Þegar börn voru fengin til að prófa Box Island, áður en hann var gefinn út, voru þau oft fljótari að átta sig á leiknum en fullorðnir. „Þegar þau fá réttu kynninguna á þessu um hvernig eigi að beita tólum leiksins, þá sáum við að í mörgum tilfellum voru þau fljótari að meðtaka leikinn,“ segir Vignir.

„Við vorum að sjá börn sem höfðu kannski tekið tíu eða tuttugu borð í leiknum. Við spurðum: „Hefur þú forritað?“ og fengum til baka: „Hvað er forritun?“. Það er ekki markmið leiksins að auglýsa að um forritunaræfingu sé að ræða. Það er í höndum foreldra eða jafnvel kennara að setja upp samhengi leiksins.“

Fyrirtækið Radiant Games var stofnað í maí í fyrra og sama ár hlaut fyrirtækið verkefnisstyrk Tækniþróunarsjóðs upp á 12,5 milljónir króna árlega til þriggja ára, ásamt því að lenda í 2.sæti af 376 viðskiptahugmyndum í frumkvöðlakeppninni Gullegginu.

Upphaf Radiant games má rekja til þess að nokkrir af stofnendum fyrirtækisins ákváðu að taka þátt í Imagine Cup hjá tæknirisanum Microsoft þegar voru í tölvunarfræðinámi hjá Háskólanum í Reykjaík.

„Þeir stukku í það og áttuðu sig síðan á því að enginn þeirra gat teiknað,“ segir Guðmundur Viðarsson, listrænn stjórnandi Radiant Games og einn af stofnendum þess.

Vilja vera með í átaki

Þá lenti fyrirtækið í öðru sæti af í frumkvöðlakeppninni Gullegginu í fyrra. Stofnendur fyrirtækisins eru Guðmundur Valur Viðarsson, Haukur Steinn Logason, Vignir Örn Guðmundsson og Þorgeir Auðunn Karlsson. Þeir Guðmundur og Haukur tóku þátt í Imagine Cup, en Vignir og Þorgeir komu inn seinna.

Í desember verður haldið forritunarátak víða um heiminn. Átakið tengist Code.org samtökunum og heitir Hour of Code, sem margir að helstu tæknifrumkvöðlum heims eins og Bill Gates og Mark Zuckerberg koma að. Hour of Code nær til tugi milljóna notenda í yfir 180 löndum. Nú þegar eru skráðir um 33 þúsund viðburðir um allan heim vikuna 7. – 13. sdesember.

Markmið Radiant Games er að Box Island verði hluti af þessu átaki. Það myndi hjálpa útgáfu leiksins gífurlega. Nú eru þeir að vinna að sérstakri Hour of Code útgáfu af Box Island til að komast að.

„Við erum semsagt að stefna á að vera með styttri útgáfu af Boz Island sem verður frí og sérstaklega hönnuð fyrir þessa viðburði,“ segir Vignir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×