Sá sterkasti spilar golf til góðs Gunnar Leó Pálsson skrifar 29. ágúst 2014 11:00 Hafþór Júlíus Björnsson, sterkasti maður Íslands, einbeitir sér vel að sveiflunni. vísir/valli „
Ég á ekki golfsett en á þó eina golfkylfu, ég held hún sé sexa en ég þurfti að fara með hana í lengingu,“ segir ofurmennið Hafþór Júlíus Björnsson sem tekur þátt í góðgerðargolfmóti hestamanna sem kallast Rider Cup og fer fram á Húsatóftavelli í Grindavík í dag. Fjöldi þekktra einstaklinga tekur þátt í mótinu og má þar nefna Fjölni Þorgeirsson, Loga Bergmann og Stefán Hilmarsson ásamt mörgum fleirum. „Ég er ekki mikill golfáhugamaður en þetta er samt ágætis sport. Ég hef núna tvisvar sinnum farið í kennslu til Karenar Sævarsdóttur og það hefur gengið vel. Fyrir mig er þetta bara upp á gamanið,“ segir Hafþór Júlíus um golfáhuga sinn. Hann er 205 sentímetrar á hæð og 170 kíló og því kannski örlítið stærri og meiri en meðalgolfari, er það einhver fyrirstaða? „Maður er kannski aðeins stífari en meðalgolfari, það er ekki alveg það sama að vera í kraftasporti og golfi. Ég held samt að ég muni standa mig með prýði, þó svo að þetta sport sé alveg lúmskt erfitt, maður verður alveg lúmskt þreyttur,“ segir Hafþór Júlíus. Golfmótið er eins og fyrr segir til styrktar góðu málefni. „Þetta er dagsmót þar sem fjögurra manna lið keppa hvert við annað. Liðsskipan er þannig að það koma tveir úr þeim fyrirtækjum sem taka þátt, einn frægur og einn landsliðsknapi,“ segir Magnús Benediktsson, einn skipuleggjenda mótsins. Hvert fyrirtæki heitir svo á málefni og ef það vinnur þá fer peningurinn til málefnisins. Í fyrra sigraði lið Baltasars Kormáks. „Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hvort hann keppir í ár en hann stóð sig vel í fyrra,“ bætir Magnús við. Eftir mótið býður Bláa lónið keppendum í lónið og síðan verður verðlaunaafhending og almenn gleði í Eldborgarsalnum í Bláa lóninu um kvöldið, þar sem Guðni Ágústsson og Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjá um veislustjórn.
Mest lesið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni Fleiri fréttir „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Sjá meira