Lífið

RÚV biðst afsökunar á Djöflaeyjunni

Í umfjöllun menningarþáttarins Djöflaeyjunnar um Game of Thrones sást persóna sem var algjört hernaðarleyndarmál. Ritstjóri þáttarins, Þórhallur Gunnarsson, hefur beðist afsökunar á innslaginu sem hefur verið klippt til fyrir vefútgáfu.Fréttablaðið/Vilhelm
Í umfjöllun menningarþáttarins Djöflaeyjunnar um Game of Thrones sást persóna sem var algjört hernaðarleyndarmál. Ritstjóri þáttarins, Þórhallur Gunnarsson, hefur beðist afsökunar á innslaginu sem hefur verið klippt til fyrir vefútgáfu.Fréttablaðið/Vilhelm
Forsýning Mannaveiða ¬ ¬ ¬ ¬ Þórhallur Gunnarsson Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri Sjónvarpið RÚV
„Þeir fengu alveg skýr fyrirmæli eins og aðrir fjölmiðlar um að ekki mætti sýna þessa persónu,“ segir Snorri Þórisson, eigandi Pegasus. Í innslagi menningarþáttarins Djöflaeyjunnar um tökur Game of Thrones hér á landi mátti sjá bregða fyrir persónu úr annarri þáttaröðinni sem framleiðendur þáttanna höfðu lagt blátt bann við að yrði notuð í umfjöllun íslenskra fjölmiðla.

Útlit hennar var mikið hernaðarleyndarmál og verður því ekki tíundað hér en Snorri segist vera ósáttur við þessa myndbirtingu. „Það var ekkert skriflegt, þetta var bara heiðursmannasamkomulag. Auðvitað er þetta eitthvað sem við getum ekkert gert í úr þessu en ég ætla að tala um þetta við fólkið hjá RÚV, þetta var algjörlega bannað.“

Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri þáttarins, segir þetta leið mistök, umrædd persóna hafi sést í tveimur víðum skotum. „Þátturinn var strax tekinn út af netinu þar til við vorum búin að leiðrétta þetta. Okkur sást bara yfir þessi skot og við erum voðalega leið yfir þessu. Ég er búinn að ræða við Snorra og mér þykir þetta leiðinlegt því ekki vil ég bregðast honum.“

Snorri segir allt annars hafa gengið snurðulaust. Tökuliðið átti frídag á þriðjudag og þá kyngdi niður snjónum. „En nú er búið að ryðja alla vegi og við erum hér í Höfðabrekku í rjómablíðu,“ segir Snorri en tökuliðið heldur af landi brott 11. desember. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×