Rússar sagðir ætla að fresta flugskeytavörnum sínum 28. janúar 2009 13:32 Barack Obama.
Útlit er fyrir þýðu í samskiptum Bandaríkjamanna og Rússa eftir forsetaskipti vestanhafs. Rússar eru sagðir ætla að fresta flugskeytavörnum sínum þar sem ný Bandaríkjastjórn hafi uppi breytta stefnu í eldflaugavörnum í Austur-Evrópu. Interfax fréttastofan rússneska hefur í morgun eftir ónafngreindum heimildarmanni í rússneska hernum að Rússar hafi ákveðið að fresta því að koma fyrir eldflaugum í Kaliningrad. Það ætluðu þeir að gera vegna áforma Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki staðfest þetta en sérfróðir segja ráðamenn í Kreml oft nota Interfax til að velta fram hugmyndum og sjá hvernig tekið verði í þær. Stjórnmálaskýrendur segja Rússa þarna að rétta fram sátthönd til Baracks Obama nýs Bandaríkjaforseta en hann og Dímítrí Medvedev, Rússlandsforseti, ræddust við í síma í fyrradag. Rússar hafa litið á eldflaugavarnarkerfið sem beina ógn við sig þó stjórn George Bush fyrrverandi forseta hafi sagt að það yrði sett upp til að verjast ógn frá útlagaríkjum á borð við Íran. Forsetarnir voru sammála um að það yrði að bæta samskipti ríkjanna. Interfax hefur eftir heimildarmanni sínum að í samtali forsetanna hafi komið fram að ný Bandaríkjastjórn ætlaði að fara sér hægt hvað varðaði að hrinda áformum um eldflaugavarnarkerfið í gang. Þess vegna ætli Rússar sé að fresta því að flytja eldflaugar til Kaliningrad. Medvedev og Obaqma hittast fyrst formlega á fundi þegar þeir sækja báðir fund tuttugu ríkja og alþjóðastofnana í Lundúnum í byrjun apríl. Þá verða samskipti ríkjanna rædd nánar.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira