Fótbolti

Rúrik og Ragnar léku í mögnuðum sigri FCK

Rúrik Gíslason fagnar í kvöld markinu sem hann lagði upp.
Rúrik Gíslason fagnar í kvöld markinu sem hann lagði upp. nordicphotos/getty
Íslendingaliðið FCK á enn möguleika á því að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir magnaðan 1-0 sigur á Galatasaray í kvöld. Rúrik lagði upp sigurmark leiksins fyrir Daniel Braaten.

FCK í þriðja sæti riðilsins með jafn mörg stig og tyrkneska liðið en með aðeins lakara markahlutfall.

Rúrik Gíslason og Ragnar Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði FCK í kvöld.

Rúrik fór meiddur af velli á 56. mínútu en Ragnar spilaði allan leikinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×