Fótbolti

Rúnar Már skoraði í sigri St. Gallen

Dagur Lárusson skrifar
Rúnar Már var á skotskónum
Rúnar Már var á skotskónum vísir/getty
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði annað mark St. Gallen í 2-0 sigri liðsins gegn Lugano í svissnesku deildinni í dag.

Fyrir leikinn var St. Gallen um miðja deild með 30 stig en það var Stjepan Kukuruzovic sem kom þeim á bragðið á 39. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleiknum.

Rúnar Már Sigurjónsson skoraði annað mark St. Gallen á 63. mínútu og fór því langleiðina með það að tryggja sigurinn. Þetta var þó ekki síðasta mark leiksins því á 88. mínútu skoraði Cedric Itten og þá var ekki aftur snúið.

Eftir leikinn er St. Gallen með 33 stig í 3. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×