Handbolti

Rúnar hafði betur gegn nafna sínum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar Sigtryggsson stýrði Balingen til sigurs í kvöld.
Rúnar Sigtryggsson stýrði Balingen til sigurs í kvöld. vísir/getty
Balingen-Weilstetten lyfti sér upp úr fallsæti með 26-29 sigri á Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Rúnar Sigtryggsson er þjálfari Balingen sem var búið að tapa fjórum leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld.

Rúnar og félagar eru nú einu stigi frá fallsæti eftir þennan fyrsta sigur ársins.

Rúnar Kárason komst ekki á blað í liði Hannover sem er búið að tapa fjórum leikjum í röð.

Hannover er í 7. sæti deildarinnar með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×