Formúla 1

Rosberg: Ég átti ekki svar við góðum akstri Lewis í dag

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg og Lewis Hamilton sem ræsa af stað á fremstu ráslínu á morgun.
Nico Rosberg og Lewis Hamilton sem ræsa af stað á fremstu ráslínu á morgun. Vísir/Getty
Mercedes liðið náði í sinn 20. ráspól á tímabilinu í dag, sem er met í Formúlu 1. Lewis Hamilton var talsvert fljótari en liðsfélagi sinn og keppinautur í heimsmeistarakeppninni. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Helgin hefur verið góð hingað til. Það er skrýtið að koma hingað því bílarnir eru að kveðja og þetta var síðasta tímatakan sem ég fer inn í á þessum bíl. Ég fór afslakaður inn í fyrsta hluta síðasta hringsins því ég vissi að ég gæti unnið upp tíma seinna á hringnum. Ég mun leggjast yfir hvað gera þarf á morgun til að tryggja þá niðurstöðu sem ég vil,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna.

Hamilton þarf að yfirstíga 12 stiga forskot Nico Rosberg í heimsmeistarakeppni ökumana til að næla í sinn þriðja heimsmeistaratitil í röð og þan fjórða á ferlinum. Rosberg dugar að ná á verðlaunapall ef Hamilton vinnur. Rosberg dugar einnig að vera á undan Hamilton í mark.

„Ég er ekki himinlifandi með þetta því ég kom hingað til að ná ráspól og vinna keppnina. Ég átti ekki svar við góðum akstri Lewis í dag. Ég náði góðum hring í þriðju lotunni en hann var bara ekki nógu góður,“ sagði Nico Rosberg eftir tímatökuna.

Getur Daniel Ricciardo hleypt spennu í titilbaráttuna á morgun?Vísir/Getty
„Varðandi ofur-mjúku dekkin þá er þetta einfaldlega tilraun til að gera eitthvað öðruvísi. Ég var hægur í byrjun tímatökunnar en þegar var komið í þriðju lotu var hraðinn kominn,“ sagði Daniel Ricciardo eftir tímatökuna.

„Ég er ánægður með að komast í þriðju lotuna. Tímatakan gekk vel og ég er glaður að síðasta tímatakan mín á ferlinum gekk vel,“ sagði Felipe Massa sem varð tíundi á Williams bílnum í sinni síðustu tímatöku.

„Ég held við verðum að vera ánægð með þetta. Það breytist mikið hér yfir helgina sérstaklega hvað varðar hitastig. Það er fínt að komast í þriðju lotuna og vonandi náum við í stig á morgun,“ sagði Fernando Alonso sem varð níundi á McLaren bílnum

„Bíllinn okkar var nokkuð góður í tímatökunni. Hann var töluvert betri en í gær. Á morgun er keppnin og við ætlum að reyna að stela verðlaunasæti á morgun,“ sagði Sebastian Vettel sem varð fimmti á Ferrari bílnum.


Tengdar fréttir

Einvígi æskuvina í eyðimörkinni

Mercedes-félagarnir Nico Rosberg og Lewis Hamilton munu berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í lokakeppni tímabilsins sem fram fer í Abú Dabí á morgun. Rosberg stendur vel að vígi í einvíginu.

Ekki fyrsta einvígið í Formúlu 1

Einvígi Rosbergs og Hamiltons um helgina gæti komist í sögubækurnar sem eitt af frægari einvígjum Formúlusögunnar.

Lewis Hamilton á ráspól í Abú Dabí

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur í tímatökunni í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×