Sport

Rosaleg rigning í Ríó í nótt | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það rigndi vel á íþróttafólkið sem og starfsfólkið í Ríó í nótt.
Það rigndi vel á íþróttafólkið sem og starfsfólkið í Ríó í nótt. Vísir/Getty
Hlé var gert á úrslitahluta frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó í nótt vegna öfgafullra veðuraðstæðna.

Gríðarleg rigning gerði keppendum lífið leitt og á endanum var eina ráðið að gera hlé á dagskránni á meðan mesta óveðrið gekk yfir.

Einn riðillinn í 100 metra grindarhlaupi karla þurfti reyndar að hlaupa í gegnum úrhellið og en eftir það hlaup var ekkert annað í stöðunni en að koma íþróttafólkinu í skjól.

Ljósmyndarar Getty-myndabankans voru á Ólympíuleikvanginum í Ríó í kvöld og náðu þessum myndum hér fyrir neðan. Þar má sjá hversu rosalega rigningin var.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×