Rooney með tvö í sigri United á Liverpool

Vísir Enski boltinn 11. febrúar 2012 09:55
Patrice Evra og Luis Suarez í baráttunni.
Patrice Evra og Luis Suarez í baráttunni. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United vann sanngjarnan 2-1 sigur á Liverpool í stórslag helgarinar í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney skoraði bæði mörk United í upphafi seinni hálfleiks.

Luis Suarez var í sviðsljósinu í dag en hann neitaði að taka í hönd Patrice Evra fyrir leikinn. Suarez skoraði mark Liverpool þegar tíu mínútur voru til leiksloka en það dugði ekki til.

Liverpool reyndi að bíta frá sér á lokamínútum leiksins en þó var United sterkari aðilinn í leiknum. Fyrra mark Rooney kom eftir skot af stuttu færi upp úr hornspyrnu og það síðara eftir sendingu Antonio Valencia sem hafði hirt boltann af Jay Spearing, leikmanni Liverpool.

Evra fagnaði vel og innilega eftir að flautað hafði verið til leiksloka, meira að segja beint fyrir framan nefið á Suarez sem leikmenn Liverpool tóku ekki vel. Það gekk einnig á ýmsu þegar leikmenn gengu til búningsklefa í hálfleik og sögusagnir um að til átaka hafi komið.

Suarez er nýbúinn að taka út átta leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Evra í leik liðanna fyrir áramót eins og mikið hefur verið fjallað um. Fyrir leikinn neitaði Suarez að taka í hönd Evra og strunsaði framhjá honum. Evra, sem hafði rétt út hönd sína, virtist ekki sáttur við þetta og greip í Suarez sem sýndi engin viðbrigði.

Leikurinn fór fjörlega af stað en Suarez var nálægt því að sleppa í gegn á fyrstu sekúndum leiksins. United lét einnig til sín taka en besta færið á upphafsmínútunum fékk Glen Johnson, bakvörður Liverpool, sem skaut hárfínt framhjá úr góðu færi á tíundu mínútu.

Scholes fékk svo frábært færi á 31. mínútu. Hann fékk algjörlega frítt skallafæri af stuttu færi eftir fyrirgjöf Ryan Giggs en boltinn fór beint á Pepe Reina, markvörð Liverpool. Sókn United var þó afar vel útfærð og samspil gömlu refanna - Scholes og Giggs - afar laglegt.

United var sterkari aðilinn í leiknum í fyrri hálfleiknum en Suarez var þó nálægt því að sleppa í gegnum vörn Uinted undir lokin. Hann komst fram hjá Evra en Rio Ferdinand náði að tækla boltann undan honum aftan frá. Ferdinand fór einnig í Suarez en Phil Dowd, dómari leiksins, dæmdi ekkert. Staðan því markalaus í hálfleik.

United-menn voru hins vegar ekki lengi að láta til sín taka í seinni hálfleik. Liðið fékk hornspyrnu strax á annarri mínútu og gaf Ryan Giggs boltann inn á teig. Jordan Henderson, leikmaður Liverpool, reyndi að skalla boltann frá en tókst ekki betur en svo að boltinn fór af honum beint fyrir fætur Wayne Rooney sem skoraði næsta auðveldlega með skoti af stuttu færi.

Aðeins þremur mínútum síðar kom næsta mark United. Jay Spearing leyfði Antonio Valencia að hirða boltann af sér á versta mögulega stað. Valencia lagði boltann inn á Rooney sem komst einn gegn Reina í marki Liverpool og afgreiddi knöttinn örugglega í netið.

United hélt áfram að sækja eftir þetta. Á 59. mínútu komst Rooney enn á ný í gott færi eftir að Scholes hafði hoppað yfir sendingu Valencia. En skot Rooney var framhjá í þetta sinn.

Leikurinn róaðist nokkuð eftir þetta en þegar um tíu mínútur voru eftir náði Liverpool skyndilega að skora. Fyrirgjöf barst inn á teig eftir aukaspyrnu. Boltinn fór af Ferdinand og beint fyrir fætur Suarez sem skoraði af stuttu færi.

Glen Johnson átti ágætt skot að marki eftir þetta sem David De Gea varði en nær komst Liverpool ekki.

Þessi síða uppfærist sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti

Boltavaktin:

Fleiri fréttir - Enski boltinn

Enski boltinn 25. maí. 2012 19:45

Dempsey: Ég vil spila í Meistaradeildinni

Clint Dempsey átti frábært tímabil með Fulham í ensku úrvalsdeildinni og skoraði alls 23 m...  

Meira
Enski boltinn 25. maí. 2012 15:19

Sky: Martinez boðið stjórastarfið hjá Liverpool

Dave Whelan, stjórnaformaður Wigan, hefur staðfest það við Sky-fréttastofuna að Liverpool ...  

Meira
Enski boltinn 25. maí. 2012 10:06

Swansea og Hoffenheim komast að samkomulagi um kaupverð á Gylfa

Sky Sports greinir frá því að enska úrvalsdeildarfélagið Swansea og Hoffenheim í Þýskaland...  

Meira
Enski boltinn 25. maí. 2012 09:54

Ruddy missir af EM vegna fingurbrots | Táningur í hans stað

John Ruddy, markvörður Norwich, braut á sér fingur á æfingu með enska landsliðinu í gær. H...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 20:00

Kostar 2,2 milljarða króna að reka Barton

Vandræðapésinn Joey Barton var í gær dæmdur í 12 leikja bann fyrir rauða spjaldið þegar Ma...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 17:00

Hulk spenntur fyrir Chelsea

Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Hulk segir að hann muni hefja viðræður við Chelsea u...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 16:15

Gerrard ætlar ekki að hætta í enska landsliðinu eftir EM í sumar

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og enska landsliðsins, er ekki að fara að spila sína s...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 14:15

Villas-Boas kemur ekki lengur til greina

Staðarblaðið Liverpool Echo segir frá því í dag að Andre Villas-Boas, fyrrum stjóri Chelse...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 11:30

Kuyt spenntur fyrir Van Gaal

Hollendingurinn Dirk Kuyt væri ánægður með ef Liverpool myndi ráða Louis van Gaal til star...  

Meira
Enski boltinn 24. maí. 2012 10:46

Kalou og Bosingwa á leið frá Chelsea

Samkvæmt enskum fréttamiðlum er búist við því að það verði tilkynnt að þeir Salomon Kalou ...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 23:30

Keane: Neville ekki jafn áhrifamikill og fólk heldur

Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, furðar sig á því að Gary Neville fái að hal...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 18:15

Almunia orðaður við West Ham

Markvörðurinn Manuel Almunia mun fara frá Arsenal þegar að samningur hans við félagið renn...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 18:04

Barton dæmdur í tólf leikja bann

Enski knattspyrnumaðurinn Joey Barton hjá QPR var í dag dæmdur í tólf leikja bann af enska...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 17:30

Fletcher á góðum batavegi

Skotinn Darren Fletcher er á góðum batavegi eftir langa baráttu við sáraristilbólgu. Vonir...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 16:45

Cleverley: Vonandi það versta yfirstaðið

Tom Cleverley, leikmaður Manchester United, stefnir að því að vera kominn aftur upp á sitt...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 16:00

Ronaldo hissa á að Rio var ekki valinn

Cristiano Ronaldo segist eiga erfitt með að skilja þá ákvörðun Roy Hodgson að velja Rio Fe...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 15:30

Hazard getur valið á milli þriggja félaga

Umboðsmaður Eden Hazard segir að viðræðum við Manchester United, Manchester City og Chelse...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 14:15

Amalfitano sagður á leið til Newcastle

Samkvæmt enskum fjölmiðlum er Newcastle á góðri leið með að klófesta franska miðjumanninn ...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 13:00

Heskey yfirgefur Villa í sumar

Emile Heskey fær ekki nýjan samning hjá Aston Villa og mun því yfirgefa félagið í sumar þe...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 13:00

Drogba í viðræðum við Sjanghæ Shenhua

Kínverska félagið Shenhau frá Sjanghæ hefur staðfest að félagið eigi nú í viðræðum við Did...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 10:45

Solskjær mun ekki taka við Aston Villa

Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær greindi frá því í gærkvöldi að hann hefði ekki lengur áhu...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 10:15

The Sun: Liverpool vill Van Gaal

Samkvæmt frétt í enska blaðinu The Sun hefur Liverpool áhuga á að ráða Hollendinginn Louis...  

Meira
Enski boltinn 23. maí. 2012 09:49

Kári fer frá Aberdeen í sumar

Craig Brown, knattspyrnustjóri skoska úrvalsdeildarfélagsins Aberdeen, hefur staðfest að K...  

Meira
Enski boltinn 22. maí. 2012 22:00

Missti af eigin steggjapartí

John Ruddy, markvörður Norwich, missti af eigin steggjun þar sem hann var frekar óvænt val...  

Meira
Enski boltinn 22. maí. 2012 17:30

Cole vill snúa aftur á Anfield

Joe Cole segist vera áhugasamur um að spila með Liverpool á ný eftir að hafa verið í láni ...  

Meira
Enski boltinn 22. maí. 2012 15:10

Heargreaves fer frá City

Owen Hargreaves er í hópi þeirra leikmanna sem fá ekki nýjan samning hjá Englandsmeisturum...  

Meira
Enski boltinn 22. maí. 2012 14:45

Abramovich íhugar að gefa Di Matteo eitt ár

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er sagður nú vera að íhuga hvort hann eigi að ráða Robe...  

Meira
Enski boltinn 22. maí. 2012 14:17

Drogba fer frá Chelsea í sumar

Chelsea hefur staðfest að Didier Drogba muni fara frá félaginu þegar samningur hans rennur...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 23:30

Bendtner vaknaði minnislaus í baðkarinu

Daninn Nicklas Bendtner heldur því fram að einhverju eiturlyfi hafi verið laumað í glas ha...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 22:45

Balotelli flottur með sítt að aftan

Ítalinn Mario Balotelli hjá Man. City er flottur í nýrri auglýsingu frá Nike þar sem framh...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 18:00

Berbatov: Ferguson sveik loforð

Dimitar Berbatov segir að hann eigi ekki annarra kosta völ en að yfirgefa herbúðir Manches...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 15:30

Suarez: Hef ekki rætt við Barca eða Real

Luis Suarez hefur gert lítið úr þeim sögusögnum að hann sé á leið í spænsku úrvalsdeildina...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 14:45

Torres: Mestu vonbrigði lífs míns

Fernando Torres hefur óskað eftir viðræðum við forráðamenn Chelsea um framtíð hans hjá fél...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 14:15

Fjögur lið á eftir Hazard

Belgíski miðjumaðurinn Eden Hazard lék líklega sinn síðasta leik með Lille í frönsku úrval...  

Meira
Enski boltinn 21. maí. 2012 10:49

Frank de Boer hafnaði Liverpool

Hollendingurinn Frank de Boer afþakkaði boð eigenda Liverpool um atvinnuviðtal hjá félagin...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 16:00

Wolves ætlar að bjóða 3 milljónir punda í Björn Bergmann

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Woves ætli að bjóða 3 milljónir punda í íslenska...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 17:00

Owen gæti verið á leiðinni til Stoke

Michael Owen, leikmaður Manchester United, gæti verið á leiðinni til Stoke City á næstu le...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 16:30

Phil Neville: Gary mun reynast enska landsliðinu vel

Knattspyrnumaðurinn Phil Neville telur að það sé frábært fyrir enska landsliðið að vera me...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 14:30

Rooney verður ekki með í vináttuleiknum gegn Norðmönnum

Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur staðfest það að Wayne Rooney mun ekki ta...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 11:30

Van Persie talar ekki við blaðamenn á meðan EM stendur

Robin van Persie er ekki búinn að ganga frá sínum málum og framtíð hans mun ekki skýrast f...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 09:00

Tevez kemst ekki í argentínska landsliðið

Carlos Tevez, leikmaður Manchester City, er ekki nógu góður til að komast í argentínska la...  

Meira
Enski boltinn 20. maí. 2012 06:00

McManaman: Liverpool getur ekki lengur valið sér hvaða stjóra sem er

Steve McManaman, fyrrum stjarna Liverpool-liðsins, segir þá daga vera liðna þegar Liverpoo...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Enski boltinn / Rooney með tvö í sigri United á Liverpool