Enski boltinn

Rooney hefur engar áhyggjur af Di Maria

Di Maria svekktur.
Di Maria svekktur. vísir/getty
Argentínumaðurinn Angel di Maria hefur engan veginn fundið sig í liði Man. Utd upp á síðkastið en Wayne Rooney, fyrirliði liðsins, hefur engar áhyggjur af því.

Di Maria byrjaði með talsverðum látum hjá félaginu eftir að hafa verið keyptur á 60 milljónir punda frá Real Madrid.

Hann var tekinn af leikvelli í hálfleik um helgina gegn Sunderland.

„Hann er frábær leikmaður og menn tapa ekki hæfileikum sínum á einni nóttu. Ég hef fulla trú á því að hann nái sér aftur á strik," sagði Rooney.

„Stundum lenda menn í svona og þá verða þeir að koma sér í gang. Ég er handviss um að hann muni gera það og vera í stóru hlutverki hjá okkur á lokasprettinum."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×