Enski boltinn

Rooney: Höfum unnið upp forskot áður

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rooney fagnar með Falcao
Rooney fagnar með Falcao vísir/getty
Wayne Rooney fyrirliði Manchester United sagði eftir öruggan 3-1 sigur á Newcastle United í gær að lið sitt væri með í titilbaráttunni og enginn skyldi afskrifa rauðu djöflana.

Rooney skoraði tvö mörk í leiknum í gær og lagði upp það þriðja og var að vonum nokkuð brattur þegar hann mætti fjölmiðlum eftir leikinn.

„Það á eftir að gera mikið, við vitum það en við höfum unnið upp forskot áður og tapað forskoti sjálfir, margra stiga forskoti,“ sagði Ronney.

„Allt getur gerst og sérstaklega næstu tvær vikurnar. Það eru margir leikir framundan og ef við náum réttum úrslitum þá verðum við í góðri stöðu.“

Manchester United hefur gengið mjög vel að undanförnu og náði í 22 stig af 24 mögulegum stigum í átta síðustu leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Engu að síður er liðið enn 10 stigum á eftir toppliði Chelsea og sjö stigum á eftir nágrönnum sínum í Manchester City.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×