Körfubolti

Rondo á leiðinni til Bulls

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rondo í leik með Sacramento.
Rondo í leik með Sacramento. vísir/getty
Rajon Rondo hefur náð samkomulagi við Chicago Bulls um tveggja ára samning. Fyrir hann fær hann 3,4 milljarða króna.

„Ég er mjög spenntur. Þetta er frábært félag og gott lið,“ sagði Rondo.

Þessi þrítugi leikmaður á að leysa Derrick Rose af hólmi en sá mikli meiðslapési er farinn til NY Knicks.

Bulls verður fjórða liðið sem Rondo leikur með á ferlinum. Hann varð meistari með Boston Celtics árið 2008 en fór svo til Dallas og loks Sacramento.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×