Sport

Ronda rifbeinsbraut sjónvarpsmann | Myndband

Ronda með sárþjáðan Tru í gólfinu.
Ronda með sárþjáðan Tru í gólfinu.
Það er mikið talað um það þessa dagana hvort UFC-bardagakonan ótrúlega Ronda Rousey geti keppt við karlmenn.

Hún mætti í viðtal hjá sjónvarpsmanninum Aaron Tru sem ögraði henni. Hann hefði betur sleppt því.

Tru sagðist ekki hafa trú á því að Rousey gæti skellt henni en hún gerði og gerði það með látum.

Rousey hefur tvisvar keppt á Ólympíuleikunum í júdó og kenndi Tru eina júdófellu. Hún gaf hvergi eftir við að skella Tru sem lá eftir rifbeinsbrotinn.

Sjá má Rondu fella Tru hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×