Enski boltinn

Rölti inn á völlinn og hellti sér yfir leikmennina | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
mynd/skjáskot
Enska fótboltaliðið Coventry má muna sinn fífil fegurri en liðið spilar nú í ensku D-deildinni og tapaði í gærkvöldi, 1-0, á heimavelli fyrir smáliðinu Forest Green.

Eina mark leiksins skoraði Keanu Marsh fyrir gestina á 29. mínútu en hann fékk mikla hjálp frá Lee Burge í marki Coventry sem gerði mikil mistök í markinu.

Lífið hefur verið erfitt fyrir stuðningsmenn Coventry undanfarin ár og í gærkvöldi gafst einn upp. Þegar lítið var eftir af leiknum rölti einn stuðningsmaður liðsins í rólegheitum inn á völlinn og hellti sér yfir leikmennina.

Þetta áhugaverða atvik má sjá hér að neðan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×