Golf

Robert Streb sigraði á McGladrey Classic eftir mikla dramatík

Streb var vel að sigrinum kominn í gær.
Streb var vel að sigrinum kominn í gær. AP
Það var mikil spenna á lokahring McGladrey Classic sem fram fór á Seaside vellinum um helgina en eftir 72 holur voru þrír kylfingar jafnir á 14 höggum undir pari.

Það voru þeir Brendon De Jonge, Will Mackenzie og Robert Streb en sá síðastnefndi lék frábært golf á lokahringnum og kom inn 63 höggum eða sjö undir pari til þess að jafna við forystusauðina.

Á fyrstu holu í bráðabananum datt Will MacKenzie út eftir að hafa fengið skolla en hinir tveir par. Streb fékk síðan fugl á annarri holu í bráðabana en De Jonge aðeins par og því sigraði hann sitt fyrsta mót á PGA-mótaröðinni, en hann hefur verið meðlimur á henni í tvö ár.

Fjórir kylfingar deildu þriðja sætinu á 12 höggum undir pari, meðal annars sigurvegari síðasta árs, Chris Kirk, sem greinilega kann vel við sig á Seaside vellinum.

Með sigrinum tryggði Streb sér rúmlega 130 milljónir króna í verðlaunafé, þátttökurétt á Masters-mótinu á næsta ári og keppnisrétt á PGA-mótaröðinni næstu tvö tímabil.

Næsta mót á mótaröðinni verður CIMB Classic sem fram fer í Kuala Lumpur í Malasíu en þar eru margir sterkir kylfingar skráðir til leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×