Tónlist

Ríkustu hip hop-listamenn heims

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Forbes hefur gefið út lista yfir fimm ríkustu hip hop-listamenn heims.

Sean „Diddy“ Combs trónir á toppnum en auðæfi hans eru metin á sjö hundruð milljónir dollara, rúma 78 milljarða króna. 



Sean „Diddy“ Combs

Metinn á 700 milljónir $ - 78,5 milljarða króna

Sean var líka í fyrsta sæti í fyrra og nálgast óðum einn milljarð dollara. Ef hann nær því að vera metinn á einn milljarð dollara yrði hann fyrsti hip hop-listamaðurinn í sögunni til þess.

2. Andre „Dr. Dre“ Young

Metinn á 550 milljónir $ - 61,7 milljarða króna

Dr. Dre stekkur í annað sæti og getur þakkað velgengni heyrnatólanna Beats by Dr. Dre fyrir það sem eru gríðarlega vinsæl.

3. Shawn „Jay Z“ Carter

Metinn á 520 milljónir $ - 58,3 milljarða króna

Jay Z er ekki bara lunkinn tónlistarmaðurinn heldur einnig athafnamaður og hefur grætt á tá og fingri á því.

4. Bryan „Birdman“ Williams

Metinn á 160 milljónir $ - 18 milljarða króna

Birdman stofnaði Cash Money Records með bróður sínum Ronald „Slim“ Williams fyrir tveimur áratugum og hafa þeir gert það gott í plötuútgáfu.

5. Curtis „50 Cent“ Jackson

Metinn á 140 milljónir $ - 15,7 milljarða króna

50 Cent er afar farsæll tónlistarmaður en getur þakkað sölu á drykknum VitaminWater fyrir þessi gríðarlegu auðæfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×