Enski boltinn

Rikki Daða: Gerrard mátaði Howard í aukaspyrnuskákinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Steven Gerrard skoraði mark Liverpool í Merseyside-slagnum um síðustu helgi í ensku úrvalsdeildinni. Markið kom beint úr aukaspyrnu sem TimHoward, markvörður Everton, hefði líklega átt að verja.

„Maður horfði fyrst á þetta og spurði sig hvort veggurinn hefði ekki átt að hoppa eða hvað málið væri,“ sagði HjörvarHafliðason í Messunni á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöldi.

„Ég er alltaf að tala um þetta millihopp. Við sjáum að Howard er í loftinu þannig hann nær ekki að bregðast strax við.“

„Þetta er ekkert út við stöng, en Howard getur ekkert gert nema hann sé með lappirnar á jörðinni. Hann tapar bara baráttunni,“ sagði Hjörvar og Ríkharður Daðason bætti við:

„Þetta er bara skák þeirra á milli sem Gerrard vann. Hann mátaði Howard.“

Umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×