Skoðun

Ríkisreknar ofsóknir

Sigurður Einarsson skrifar
Um þessar mundir er áberandi umræða um dómsmál sem átti sér stað fyrir rúmlega 40 árum. Þetta hafa verið nefnd Guðmundar- og Geirfinnsmál. Dapurlegt er málið og hefur nú verið ákveðið að heimilt sé að endurupptaka það að mestu. Vonandi næst þá fram meira réttlæti til handa sakborningum í þessum ömurlegu málum. Einhverjum kann þó að þykja nokkuð seint þar sem sumir af þeim sem þá voru dæmdir eru nú látnir. Samt sem áður er það gott að réttlæti nær fram að ganga þótt um síðir sé.

Önnur dómsmál eru nýrri af nálinni og sum enn í gangi. Þessi mál eru kennd við bankahrun. Margir sem telja sig áhrifamikla samfélagsrýna hefur mislíkað að samanburður sé gerður á þeirri misbeitingu valds og ofsóknum sem virðist hafa átt sér stað fyrir tæpum 40 árum í Guðmundar- og Geirfinnsmáli og svo þeirri misbeitingu valds og þeim ofsóknum sem hafa átt sér stað á undanförnum árum gagnvart fyrrum stjórnendum einkabankana.

Ég er einn af þeim sem hef orðið fyrir misbeitingu valds og ofsóknum af hálfu opinberra aðila einkum saksóknara og dómstóla. Ekki er ég á nokkurn máta að gera tilraun til þess að setja mig í spor þeirra sem urðu fyrir misbeitingu valds af hálfu hins opinbera kerfis í Guðmundar- og Geirfinnsmálum fyrir tæplega 40 árum síðan. Samt sem áður er það þannig að enn á ný eru það opinberir aðilar saksóknarar og dómstólar sem fara ekki að lögum, beita ofbeldi, misbeita valdi og nýta fjölmiðla til að ofsækja fáeina einstaklinga á fölskum fyrirframgreindum forsendum sektar.

Í sameiningu hefur framkvæmdavaldið- og dómsvaldið ítrekað brotið á grundvallar mannréttindum sem vernduð eru stjórnarskránni og í mannréttindasáttmála Evrópu. Þetta er staðreynd sem Hæstiréttur Íslands staðfesti þegar héraðsdómur í svokölluðu Marple-máli var ómerkur vegna vanhæfi meðdómarans Ásgeirs Brynjars Torfasonar, lektors við Háskóla Íslands. Frá upphafi málsmeðferðar lág fyrir að vanhæfi dómarinn hafði fyrir fram tjáð sig frjálslega um sekt fyrrum stjórnenda einkabankanna á hruninu sem hér átti sér stað í alþjóðlegu efnahagskreppunni árið 2008. Benda má á að kostnaður skattborgara vegna ofbeldisins muni verð mikill.

Sakborningar munu þurfa að ganga aftur í gegnum þá slæmu lífsreynslu sem skýrslutaka og réttarhöld eru. Nú þegar Hæstiréttur er farinn að sjá ljósið úr því myrkri sem einkennt hefur dómsvaldið í hrunamálum ætti saksóknari að sjá sóma sinn í því að draga málsóknina til baka.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×