Enski boltinn

Ríkharður: Chelsea er líklega erfiðasta liðið til að lenda undir gegn

„Chelsea fékk algjöra draumbyrjun og það er líklega erfiðasta liðið til að lenda undir á móti í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Ríkharður Daðason í Messu gærdagsins um ótrúlegan leik Everton og Chelsea sem fór fram á laugardaginn.

Chelsea komst snemma í 2-0 og fátt benti til þess að Everton næði að koma til baka.

„Það leit ekki út fyrir að Everton væri að fara að gera eitt né neitt,“ bætti þáttarstjórnandinn Guðmundur Benediktsson við.

Í spilaranum hér að ofan má sjá yfirferð þeirra félaga um fyrri hálfleikinn í leik Everton og Chelsea.


Tengdar fréttir

Remy til Chelsea

Loic Remy er kominn til Chelsea frá QPR, en Chelsea staðfesti þetta nú síðdegis.

Chelsea vann í mögnuðum leik á Goodison

Það var frábær knattspyrnuleikur á Goodison Park í dag þegar Chelsea heimsótti Everton í síðasta leik dagsins í enska boltanum. Chelsea vann 6-3 í mögnuðum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×