Innlent

Riða rústar ævistarfi Jónínu á Stóru-Gröf

Sveinn Arnarsson skrifar
Jónína Stefánsdóttir, bóndi á Stóru Gröf.
Jónína Stefánsdóttir, bóndi á Stóru Gröf.
Riðuveiki virðist vera að skjóta upp kollinum á nýjan leik í Skagafirði en á síðustu átján mánuðum hafa fjögur tilvik komið upp. Bæirnir eru á svipuðum slóðum í Skagafirði og liggur fé þeirra saman á afrétti. Sigríður Bjarnadóttir, dýralæknir hjá Matvælastofnun, segir mikilvægt að rannsaka riðutilfellin ítarlega.

Riðuveiki er afar erfiður sjúkdómur því smitberi getur lifað í náttúrunni í áratugi.
„Smitefnið er afar lífseigt og getur lifað í náttúrunni í fjölda ára. Því er nokkuð erfitt að eiga við sjúkdóminn,“ segir Sigríður.

„Í sjálfu sér er erfitt að finna skýringu á því af hverju riðan er að koma upp aftur núna. Við þurfum að víkka út faraldsfræðilega rannsókn á riðutilfellunum. Féð liggur saman á afrétti og hafi til að mynda riðuveik kind drepist á afrétti er smitefnið lengi í náttúrunni.“

Fyrir þremur áratugum voru aðgerðir hertar gegn riðu hér á landi til að stemma stigu við útbreiðslu hennar. Síðan þá hefur yfir 160 þúsund kindum verið fargað af riðusýktum bæjum. Þrátt fyrir að riðan sé að koma upp aftur nú í Skagafirði eftir nokkur riðulaus ár hefur mikill árangur unnist. Bændur þurfa að fara í gríðarlega mikla vinnu við bú sín þegar riðuveiki greinist og litlar sárabætur nást upp í það tap sem hlýst af.

Riðutilfelli í Skagafirði 2009-2016
„Fótunum er bara kippt undan manni,“ segir Jónína Stefánsdóttir, bóndi á Stóru-Gröf ytri í Skagafirði, en kind hjá henni greindist með riðu í síðustu viku.

„Nú erum við að missa allt okkar fé út af einni kind, þetta var ævistarfið og lifibrauðið. Við höfðum ræktað þennan stofn í öll þessi ár og svo á bara að lóga öllu fénu.“

Jónína segir mikið verk fyrir höndum.

„Nú þurfum við að rífa allt innan úr fjárhúsunum og skipta um jarðveg og sótthreinsa allt frá toppi til táar. Það verður skrítin tilfinning í vetur að hafa jörðina tóma. Í sjálfu sér er þá ekkert lengur til að vakna fyrir á morgnana,“ segir Jónina.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Annað riðutilfelli í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í Skagafirði. Er þetta í annað skipti á skömmum tíma sem riða greinist í Skagafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×