Formúla 1

Ricciardo vann í Belgíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ricciardo vann sína þriðju keppni í dag.
Ricciardo vann sína þriðju keppni í dag. Vísir/Getty
Daniel Ricciardo á Red Bull kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum rétt í þessu. Annar var Nico Rosberg á Mercedes og þriðji Valtteri Bottas á Williams.

Þar sem tímatakan í gær fór fram í rigningu gátu allir ökumenn valið um dekkjagerð í upphafi keppninnar. Fernando Alonso sat eftir á ráslínu þegar ökumenn fóru af stað í upphitunarhring. Hann fékk refsingu vegna þess að vélvirkjar hans voru á brautinni eftir að þeir áttu að vera búnir að yfirgefa hana.

Lewis Hamilton náði forystunni af Nico Rosberg strax í ræsingunni. Sebastian Vettel hafði náði fyrsta sætinu en missti það þegar hann missti af beygju og þurfti að gefa sætið eftir.

Rosberg lenti aftan á bíl Hamilton þegar Þjóðverjinn var að reyna að taka fram úr. Vinstra afturdekk á bíl Hamilton sprakk við snertinguna Hamilton tapaði mörgum sætum. Hluti af framvæng Rosberg brotnaði af í sömu andrá en Rosberg gat haldið áfram.

Rosberg tók þjónustuhlé til að fá nýjan framvæng og nýjan dekkjagang. Daniel Ricciardo tók þá við forystunni.

Ricciardo gerði vel í að mjaka sér burt frá Raikkonen sem var annar. Bilið á milli þeirra jókst hægt en örugglega.

Rosberg náði þriðja sæti á 25. hring og hóf þá að elta uppi Daniel Ricciardo. Skömmu síðar náði Rosberg öðru sæti af Raikkonen og þá voru 22 sekúndur á milli Rosberg og Ricciardo. Allt kom fyrir ekki, Rosberg náði ekki Ricciardo á lokasprettinum.

Ræsingin var rosaleg í dag.Vísir/Getty
„Ég sá fram á að komast fram úr Lewis og ég reyndi a fara út fyrir hann en því miður varð snerting,“ sagði Rosberg um atvikið sem að öllum líkindum kostaði Hamilton talsvert magn stiga í dag.

„Hér eru nánast jafn margir ástralskir fánar og í Melbourne,“ sagði himinlifandi Ricciardo eftir keppnina og bætti svo við „Þegar maður leiðir keppnina svona lengi snýst allt um að vera eins stöðugur og hægt er.“

„Ég held að það gæti verið erfitt í ár,“ segir Bottas um hvort það styttist í að hann vinni keppni.

„Árekstur innan liðsins er algjörlega óásættanlegur,“ segir Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes sem er allt annað en kátur með sína menn í dag. 

Mercedes liðið verður með fund innan stundar þar sem ökumenn og stjórnendur liðsins ræða atburði dagsins. 

Bottas þurfti að berjast fyrir þriðja sætinu í dag en tókst að halda því undir lokin.Vísir/Getty
Úrslit belgíska kappakstursins 2014:

1.Daniel Ricciardo - Red Bull - 25 stig

2.Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig

3.Valtteri Bottas - Williams - 15 stig

4.Kimi Raikkonen - Ferrari - 12 stig

5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig

6.Kevin Magnussen - McLaren - 8 stig

7.Jenson Button - McLaren - 6 stig

8.Fernando Alonso - Ferrari - 4 stig

9.Sergio Perez - Force India - 2 stig

10.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 1 stig

11.Nico Hulkenberg - Force India

12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

13.Felipe Massa - Williams

14.Adrian Sutil - Sauber

15.Esteban Gutierrez - Sauber

16.Max Chilton - Marussia

17.Marcus Ericsson - Caterham

Jules Bianchi - Marussia - kláraði ekki

Lewis Hamilton Mercedes - kláraði ekki

Romain Grosjean - Lotus - kláraði ekki

Pastor Maldonado - Lotus - kláraði ekki

André Lotterer - Caterham - kláraði ekki


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Nico Rosberg á Mercedes plantaði sér á ráspól fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Lewis Hamilton var annar og Sebastian Vettel þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×