Fótbolti

Rendurnar snúa aftur á treyju Börsunga og engin auglýsing

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glæsleg nýja treyjan.
Glæsleg nýja treyjan. mynd/barcelona
Spánar- og bikarmeistarar Barcelona kynntu í dag nýjan keppnisbúning liðsins sem það notar á næstu leiktíð.

Lóðréttu rendurnar snú aftur sem margir stuðningsmenn Barcelona fagna vafalítið. Þá var búningurinn kynntur án auglýsingu framan á honum.

Engin auglýsing var framan á keppnistreyju Börsunga til ársins 2012 þegar félagið gerði samning við Qatar Foundation en frá árinu 2013 hefur flugfélagið Qatar Airwaves auglýst framan á treyju Spánarmeistaranna.

Fram kemur á knattspyrnuvefnum Goal.com að Qatar Airwaves hafi ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við Börsungar og því sé engin auglýsing framan á treyjunni eins og staðan er.

Búist er við að Barcelona finni sér styrktaraðila til að auglýsa framan á treyjunni áður en leiktíðin 2016/2017 hefst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×