Enski boltinn

Remy til Chelsea

Anton Ingi Leifsson skrifar
Remy með Chelsea búninginn.
Remy með Chelsea búninginn. Vísir/Getty
Loic Remy er kominn til Chelsea frá QPR, en Chelsea staðfesti þetta nú síðdegis.

Remy hefur verið orðaður við Chelsea og Arsenal undanfarna daga, en talið er að kaupverðið hljóði uppá 10,5 milljónir punda.

Remy er 27 ára gamall Frakki sem kom til QPR árið 2013 frá Marseille, en hann var á láni á síðustu leiktíð hjá Newcastle þar sem hann lék vel; spilaði 26 leiki og skoraði 14 mörk.

Remy mun berjast við Diego Costa og Didier Drogba um framherjastöðuna hjá Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×