Handbolti

Refirnir í fyrsta sinn í basli en unnu fimmta sigurinn í röð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú.
Bjarki Már Elísson skoraði þrjú. vísir/getty
Füchse Berlín, heimsmeistarar félagsliða, halda áfram sigurgöngu sinni í þýsku 1. deildinni í handbolta.

Berlínarrefirnir unnu þriggja marka sigur á Stuttgart á heimavelli í kvöld, 28-25, en þetta er fimmti sigur liðsins í röð í jafnmörgum leikjum við upphaf nýs tímabilsins.

Þetta er í fyrsta sinn sem Füchse lendir í basli í deildarleik á tímabilinu en fyrstu fjóra leikina vann liðið stórt. Það var á lokakaflanum í kvöld sem Refirnir slitu sig frá Stuttgart.

Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir heimamenn sem eru á mikilli siglinu undir stjórn Erlings Richardssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×