Refaveiðar í lögum allt frá 13. öld 18. nóvember 2009 14:44
Hörð mótmæli berast nú af landsbyggðinni vegna áforma umhverfisráðherra að hætta að styrkja refaveiðar. Æðarbændur benda á að ákvæði um fækkun refa hafi verið í lögum frá 13. öld og Dalamenn vilja að ríkið ráði sérstakar refaskyttur til starfa.Æðarræktarfélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að hætta þátttöku ríkisins í refaveiðum og bendir á að allt frá 13. öld hafa verið inni ákvæði í lögum um fækkun refa. Formaður Æðarræktarfélagsins, Jónas Helgason í Æðey, segir að ekki hafi verið færð rök fyrir því af hverju það sé í lagi að hætta refaveiðum akkúrat núna og telur fjarri lagi að ná megi fram 17 milljóna króna sparnaði. Segir Jónas að sér sé ekki kunnugt um að rætt hafi verið við hagsmunaðila og telur fróðlegt að heyra hverjir voru ráðgjafar ráðherra í þessu máli.Þá mótmælir byggðaráð Dalabyggðar skipulagsleysi sem það segir hafa einkennt stjórn refaveiða á Íslandi um langt árabil. Engin heildstæð sýn hafi verið á málaflokknum og samræmdar aðgerðir sveitarfélaga og ríkis nær engar. Ákvörðun umhverfisráðuneytisins nú að hætta að greiða verðlaun fyrir veidd dýr sé skýrt dæmi um þessi vinnubrögð.Dalamenn leggja til að nýtt skipulag verði tekið upp. Ráðnir verði veiðimenn sem heyri beint undir veiðimálastofnun og þeir sinni grisjun refastofnsins á öllu landinu. Veiðar miðist fyrst og fremst við varplönd fugla. Lagt verði af það fyrirkomulag að einstök sveitarfélög ráði því hvort þau borgi verðlaun fyrir refaveiðar eða ekki. Slíkt fyrirkomulag þjóni engum tilgangi og veiðum verður í rauninni sjálfhætt haldi það áfram. Offjölgun á einum stað og útrýming á öðrum geri ekkert gagn.
Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira