Enski boltinn

Redknapp í skýjunum með Van der Vaart

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Harry Redknapp, stjóri Spurs, var að vonum kampakátur með Hollendinginn Rafael van der Vaart í dag en Hollendingurinn skoraði bæði mörk Spurs í 2-1 sigri á Aston Villa.

Redknapp segir að það líti út fyrir að þær 8 milljónir punda sem félagið greiddi fyrir hann hafi verið allt of lítið.

"Hann hefur byrjað ótrúlega hjá okkur. Honum gengur frábærlega. Hann vill alltaf fá boltann og reynir alltaf að skora en hann er einmitt mjög góður í því," sagði Redknapp.

Van der Vaart er búinn að skora fjögur mörk í þremur heimaleikjum með Spurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×