Viðskipti erlent

Red Bull þarf að endurgreiða öllum viðskiptavinum sínum 10 dali

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Red Bull veitir fólki ekki vængi í rauninni.
Red Bull veitir fólki ekki vængi í rauninni.
Þeir sem keyptu orkudrykkinn Red Bull í Bandaríkjunum frá 1. janúar 2002 til 3. október á þessu ári, gætu átt inni tíu dali, eða um 1200 krónur, hjá fyrirtækinu sem framleiðir drykkina.

Ástæðan er sú að fyrirtækið getur ekki staðið við loforð sitt um að gefa neytendum aukna orku. Ekki þótti sannað að meiri orka kæmi úr Red Bull en venjulegum kaffibolla.

Dómsátt náðist á milli lögmanna fyrirtækisins Red Bull GmbH, sem framleiðir orkudrykkina, og lögmanna tveggja hópa viðskiptavina sem fóru fram á bætur vegna loforða fyrirtækisins. Samið var í síðasta mánuði og var greint frá efnisatriðum samningsins í fjölmiðlum í Bandaríkjunum í dag.

Þeir sem vilja ekki peninga ættu að geta fengið vörur frá fyrirtækinu að virði 15 dala, sem svarar um 1800 krónum.

Alls hljóðar dómsáttin upp á 13 milljónir Bandaríkjadala. Fulltrúar fyrirtækisins neituðu að fyrirtækið hefði gert eitthvað rangt, en sögðust hafa samið til þess að koma í veg fyrir frekari málsókn. Samningurinn verður lagður fyrir dómara sem kveður upp úrskurð um hvort dómsáttin verði samþykkt í maí á næsta ári. Þá hefur fyrirtækið 150 daga til að gera upp við viðskiptavini sína.

Þeir sem keyptu Red Bull drykki frá því í janúar árið 2002 hafa fjórar leiðir til þess að sækja um endurgeriðsluna. Þeir geta gert það í gegnum vefinn, í gegnum tölvupóst, með því að senda fyrirtækinu póst eða með því að senda fyrirtækinu fax. Sækja þarf um endurgreiðsluna fyrir 2. mars  á næsta ári. Ekki þarf að leggja til kvittun.

Engin málaferli hér á landi

Ölgerðin sér um innflutning á Red Bull Orkudrykkjum hér á landi. Eins og sjá má hér að neðan hefur slagorðið „Red Bull veitir þér vængi“ á opinberri Twitter-síðu tileinkaðri orkudrykknum hér á landi. Í svörum Ölgerðarinnar kom fram að þar á bæ vissu forsvarsmenn fyrirtækisins ekki um nein málaferli hér á landi vegna notkunar á þessu slagorði.

Uppfært klukkan 18.08. Í upphaflegu fréttinni var sagt að málið snérist um að slagorð fyrirtækisins: „Red Bull Gives You Wings“ eða „Red Bull veitir þér vængi“ hafi verið talið villa um fyrir neytendum. 

Hér að neðan má sjá nokkur tíst frá twitter-síðu Red Bull á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×