Fótbolti

Real Sociedad náði jafntefli í Vigo án Alfreðs

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Það styttist í Alfreð
Það styttist í Alfreð vísir/getty
Celta Vigo og Real Sociedad gerðu 2-2 jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Alfreð Finnbogason er enn að jafna sig eftir að hafa farið úr axlarlið og var fjarri góðu gamni hjá Sociedad.

Fabian Orellana kom Celta Vigo yfir á 28. mínútu og var Celta marki yfir í hálfleik.

Joaquin Larrivey tvöfaldaði forskotið á þriðju mínútu seinni hálfleiks en Agirretxe rétti Real Sociedad líflínu á 69. mínútu með góðu marki.

Allt benti til þess að Celta myndi landa stigunum þremur þar til Jonny Castro varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark í uppbótartíma.

Celta fór upp í þriðja sæti með 5 stig en Sociedad er í 5. sæti með stigi minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×