Innlent

Rasískum fúkyrðum rignir yfir meðlimi UVG

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hluti þeirra ungmenna sem koma fram í myndbandinu.
Hluti þeirra ungmenna sem koma fram í myndbandinu. myndir/youtube
Boðskapur UVG virðist hafa farið öfugt ofan í einhvern hluta heimsbyggðarinnar. Fyrir skemmstu sendu ungliðarnir frá sér myndband þar sem þeir buðu flóttamenn velkomna til Evrópu, líkt og sagt var frá á Vísi fyrr í kvöld, en nú hrannast rasísk ummæli inn á myndbandið á Youtube.

Meðal ummæla sem hafa fallið má nefna „Aumingja heilaþvegnu krakkar. Njótið aukinna nauðganna og glæpa“, „Helvítis hommar, Ísland sýgur. Ég vona að sýrlenskir „flóttamenn“ nauðgi konunum ykkar og myrði ykkur öll, vinstri hommarnir ykkar“ og „Ég vona að hinn venjulegi Íslendingur sé gáfaðri en þessi einföldu börn.“

Ummælin virðast eiga rætur sínar að rekja til spjallborðs á 4chan en þar deilir Norðmaður myndbandinu og biður um aðstoð við að „dislike-a“ myndbandið og drekkja því í hatri. Fólk frá hinum ýmsu löndum taka undir skilaboðin en þar á meðal má nefna Bosníumenn, Ástrala, Bandaríkjamenn og Frakka.

„Við verðum að drekkja þessu myndbandi á meðan það er nýtt,“ segir einn meðlima spjallborðsins. Séu myndbönd á Youtube nógu óvinsæl detta þau neðar í leit á síðunni og erfiðara verður að finna það á síðunni fyrir notendur hennar.

Ummælin á spjallborðinu eru áþekk þeim sem finnast á Youtube. Þar má meðal annars lesa að það vanti fleiri „múlatta“ á Íslandi. Einn ungliða VG mælir á serbnesku í myndbandinu og er Serbi þar afar óánægður með hana. „Hún talar serbnesku eins og hún hafi fæðst hér. Það lætur mig hata hana enn meir.“

Það er ekki aðeins fólk í öðrum löndum sem úthúðar ungliðunum fyrir myndbandið en þar má einnig finna Íslendinga sem kalla þau föðurlandssvikara fyrir boðskapinn sem fram kemur í kveðjunni.

„Þessi ofsafengnu viðbrögð kristalla einfaldlega mikilvægi boðskaparins. Þessa bylgju rasisma sem virðist vera að rýsa í Evrópu verður að taka alvarlega,“ segir Ragnar Auðun Árnason alþjóðaritari Ungra vinstri grænna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×