Innlent

Rannsókninni á máli Birnu Brjánsdóttur að ljúka

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn sem situr í haldi grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur var leiddur fyrir dómara í liðinni viku.
Maðurinn sem situr í haldi grunaður um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur var leiddur fyrir dómara í liðinni viku. vísir/eyþór
Rannsókninni á máli Birnu Brjánsdóttur lýkur í næstu viku eða byrjun þeirrar þar næstu að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Málið verður þá sent til héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út en einn maður, grænlenskur skipverji af togaranum Polar Nanoq, er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Birnu.

Birna hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Umfangsmikil leit var gerð að henni í vikunni á eftir og fannst lík hennar í fjörunni við Selvogsvita sunnudaginn 22. janúar.

Þá voru tveir menn búnir að vera í gæsluvarðhaldi í fjóra daga, annars vegar maðurinn sem enn er í haldi og hins vegar kollegi hans af grænlenska togaranum, en honum var sleppt úr haldi tveimur vikum síðar. Ekki var farið fram á farbann yfir manninum og fór hann því aftur heim til Grænlands en maðurinn er þó enn með stöðu grunaðs manns í málinu.

Grímur segir að enn sé verið að bíða  eftir niðurstöðum úr lífsýnarannsóknum.

„Við stefnum á að ljúka rannsókn um miðjan mánuðinn, það er öðru hvoru megin við þar næstu helgi. Okkur eru að berast annars slagið niðurstöður úr rannsóknum erlendis frá sem bætast þá bara inn í rannsóknina og við erum raunverulega bara í þeirri stöðu að vera að bíða eftir þeim niðurstöðum,“ segir Grímur.

Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi var í liðinni viku úrskurðaður í áframhaldandi varðhald í fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna. Hann var yfirheyrður áður en hann var leiddur fyrir dómara en hefur ekki verið yfirheyrður síðan. Grímur segir þó að hann verði yfirheyrður áður en rannsókninni ljúki en ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður.


Tengdar fréttir

Skipverji fjarri öðrum föngum

Thomas Møller Olsen er einn á gangi í fangelsinu á Hólmsheiði á meðan starfsmenn fangelsisins reyna að átta sig á honum. Hann sinnir hvorki vinnu né skóla. Alls 26 fangar dvelja nú í fangelsinu á Hólmsheiði.

Skipverjinn í fjögurra vikna varðhald

Maðurinn sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í janúar síðastliðnum var í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×