Innlent

Rannsaka hvað olli slysinu

Svavar Hávarðsson skrifar
Mennirnir sváfu í húsinu með rauða þakinu fyrir miðri mynd. Það stendur 20 metrum frá vinnsluhúsi Háteigs.
Mennirnir sváfu í húsinu með rauða þakinu fyrir miðri mynd. Það stendur 20 metrum frá vinnsluhúsi Háteigs. vísir/GVA
Starfsmaður Fiskverkunarinnar Háteigs fannst látinn í svefnskála fyrirtækisins á Reykjanesi í gær og annar var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Við rannsókn Vinnueftirlitsins, lögreglu og fulltrúa Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja kom í ljós að eitruð gös höfðu komist inn á kaldavatnskerfi byggingarinnar með þessum afleiðingum. Uppruni gassins er frá niðurdælingarholu Reykjanesvirkjunar, var talið staðfest þegar Fréttablaðið fór í prentun.

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning um slysið klukkan 7.15 í gærmorgun. Lífgunartilraunir báru ekki árangur og maðurinn var úrskurðaður látinn á staðnum. Félagi hans var útskrifaður af sjúkrahúsi um miðjan dag.

Vinnueftirlitið stöðvaði vinnu í nærliggjandi fyrirtækjum, Haustaki og Stolt Seafarm, vegna slyssins. Í fréttatilkynningu lögreglu sem barst fjölmiðlum eftir hádegi kom fram að á engum tíma stafaði almenningi hætta af gasmenguninni og að neysluvatn á Suðurnesjum væri í góðu lagi.

Kristinn Tómasson
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins beindist grunur að djúpborunarholu á svæðinu, en hún var fljótt útilokuð í rannsókninni og litið til einnar af niðurdælingarholum HS Orku á svæðinu.

Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, vann að rannsókn málsins í gær. Hann segir að í þessu vinnurými sem tengist verksmiðju Háteigs sé sírennsli á neysluvatni. Vatnið mengast af kolmónoxíði og brennisteinsvetni sem olli þessu.

„Þetta safnast saman yfir nóttina í hækkandi styrk. Kolmónoxíð er bráðhættulegt og getur valdið dauða og brennisteinsvetnið getur það líka. Þetta er stórundarlegt og grafalvarlegt mál,“ segir Kristinn en neitar því að um handvömm sé að ræða. 

„Það hefur myndast yfirþrýstingur á kerfinu sem hefur gert þetta að verkum,“ segir Kristinn og vísar þá til þess að við niðurdælingu er vatni dælt niður; yfirþrýstingur, eða bakþrýstingur, myndast og gufurnar fara inn í kerfið. Kristinn slær þó þann varnagla að rannsókn standi yfir og ótímabært sé að fullyrða um orsakir slyssins þó að allt bendi í eina átt.

Framhaldsrannsókn er meðal annars í höndum Vinnueftirlitsins. Kristinn segir að kallað hafi verið eftir ýmsum gögnum, teikningum og fleiru til að átta sig á heildarmyndinni. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Banaslys í svefnskála á Reykjanesi

Einn maður lést og annar hefur verið fluttur á sjúkrahús eftir slys sem átti sér stað hjá fiskvinnslufyrirtækinu Háteigur á Reykjanesi í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×