Erlent

Rán í beinni útsendingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Tökubúnaði var rænt af starfsmönnum tveggja sjónvarpsstöðva í San Francisco í gær. Vopnaðir menn rændu fólkið á meðan starfsmenn annarrar stöðvarinnar voru í beinni útsendingu. Fréttafólkið var að fjalla um morð sem framið hafði verið deginum áður.

Einn maður stökk út úr BMW bíl og rændi fólkið. Þar að auki sló hann einn mann í höfuðið með skaftinu á skammbyssu. Tveir aðrir menn sátu í bílnum en þeir stálu tveimur myndavélum og þrífótum.

Cara Liu var í beinni útsendingu fyrir KTVU þegar atvikið átti sér stað eins og sjá má hér að neðan.

Samkvæmt CBS hefur lögreglan einn mann í haldi en ræninginn skildi eftir sig skotfæri sem duttu úr byssunni þegar hann sló myndatökumanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×