Bíó og sjónvarp

Ragnar Bragason fékk að fresta fæðingu tvíbura sinna

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ragnar Bragason sótti um hjá Kvikmyndasjóði mörg ár í röð áður en hann hlaut náð fyrir augum sjóðsins og gerði sína fyrstu kvikmynd, Fíaskó. Ragnar er viðmælandi í næsta þætti Fókus.

„Þetta var Reykjavíkursaga og við vorum heppin með snjó og kulda,“ segir Ragnar. „Ég var hins vegar með flensu mest allan tímann og var útúrdópaður af einhverjum lyfjakokteilum til að halda mér gangandi í tökunum.“

Á sama tíma og tökurnar stóðu átti hann von á tvíburunum mínum og þeir fæddust í síðustu tökuvikunni. Í lokavikunni var stór hópsena á dagsskrá og það hafði verið mega mál að plana hana.

„Það átti að setja konuna mína af stað á sama dag og þessi taka átti að fara fram. Ég hringdi í lækninn og bar upp þá bón að fá að fresta fæðingunni um sólarhring. Hvort það væri ekki hægt. Henni þótti bóninn sérkennileg en samþykkti hana,“ segir Ragnar.

Fókus er á dagskrá Stöðvar 2 næstkomandi laugardagskvöld.


Tengdar fréttir

Hugleiddi að taka stera

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson gjörbreytti útliti sínu fyrir hlutverk handrukkara í Svartur á leik. Hann massaði sig upp og missti tuttugu kíló á fjórum mánuðum, sem var hreint ekki áreynslulaust.

Hárkolla Russell Crowe kostaði milljón

Ragna Fossberg er einn farsælasti gervasmiður landsins og margverðlaunuð fyrir störf sín. Hún sá um öll gervi Spaugstofunnar í nær tvo áratugi, og hefur þar fyrir utan farðað fyrir fjölda áramótaskaupa, sjónvarpsþátta og hátt í þrjátíu bíómyndir.

Fangaklefi á barnaheimili vakti grunsemdir

Upphaf Breiðuvíkurmálsins má rekja til þess þegar kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson frétti frá vini sínum af tilvist steypts klefa í kjallara hótelsins á Breiðavík, sem eitt sinn var vistheimili fyrir börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×