Enski boltinn

Rafael segir að United sé einn besti klúbbur í heimi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rafael í eldlínunni.
Rafael í eldlínunni. Vísir/Getty
Rafael, hægri bakvörður Manchester United, segir að United sé einn besti klúbbur í heimi ef ekki sá besti. Hann er hrikalega ánægður með lífið hjá United.

„Ég er ánægður að vera enn hér, en margir leikmenn hafa farið," sagði United.

„Mig langar að vera hér áfram og vera hér þangað til ferlinum lýkur, ef það er möguleiki. Ég kom hingað 15 ára og mér líður eins og heima hjá mér."

„Ég get ekki sagt nógu mikið um þennan klúbb. Þetta er einn besti klúbburinn í heiminum, ef ekki sá besti," sagði Rafael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×