Innlent

Ráðuneytið skoðar málið

Ögmundur og jóhanna Ráðherrarnir hafa báðir fengið á sig úrskurði frá kærunefnd jafnréttismála. Nú skoðar innanríkisráðuneytið framhald málsins.
Ögmundur og jóhanna Ráðherrarnir hafa báðir fengið á sig úrskurði frá kærunefnd jafnréttismála. Nú skoðar innanríkisráðuneytið framhald málsins.
Verið er að fara yfir úrskurð kærunefndar jafnréttismála í innanríkisráðuneytinu, eftir að nefndin úrskurðaði að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefði brotið gegn jafnréttislögum. Engin ákvörðun hefur enn verið tekin um framhaldið.

Niðurstaða nefndarinnar er annar úrskurðurinn sem ráðherra í ríkisstjórninni fær á sig, því Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra var talin hafa brotið jafnréttislög með því að ráða karl í stað konu í starf skrifstofustjóra árið 2010.

Konan, Anna Kristín Ólafsdóttir, fór með mál sitt fyrir dómstóla og voru henni dæmdar miskabætur frá ríkinu í júní síðastliðnum. Í því máli hafði forsætisráðuneytið boðið sættir áður en til kasta dómstóla kom.

Halla Bergþóra Björnsdóttir, sem kærði ákvörðun innanríkisráðherra um ráðningu sýslumanns á Húsavík, hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún hyggst fara með mál sitt fyrir dómstóla.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur lýst því yfir að hann sé ósammála úrskurði nefndarinnar og hann hafi farið að eigin samvisku og beitt eigin dómgreind við ráðninguna. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, telur að ef svo er eigi hann að fara með málið fyrir dómstóla til að fá úr því skorið. Annars standi úrskurðurinn.

Úrskurðir nefndarinnar eru bindandi samkvæmt jafnréttislögum frá árinu 2008, en í máli Önnu Kristínar var í fyrsta sinn tekið á því hvaða merkingu það hefur. Samkvæmt dómnum er niðurstaða úrskurðarnefndar jafnréttismála bindandi ef stjórnvöld höfða ekki mál innan ákveðinna málshöfðunarfresta.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur í sambandi við úrskurði nefndarinnar sagt að henni finnist að breyta þurfi ráðningarferlinu hjá ríkinu og hún vilji sjá að hæfnisnefndir verði fengnar í öllum tilvikum. Þá hefur hún sagt að fari ráðherrar ekki að mati slíkra nefnda þurfi þeir að færa fyrir því mjög góð rök.

Ekki hafa fengist upplýsingar um það frá forsætisráðuneytinu hvort í bígerð sé að gera breytingar í þessa veru. Settar voru reglur um ráðningar á skrifstofustjórum og ráðuneytisstjórum í tengslum við breytingar á stjórnarráðinu í vor. Þær reglur kveða á um að skipa skuli ráðgefandi hæfnisnefnd í hvert sinn sem skipa þarf í þessar stöður. thorunn@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×