Ráðning Þorgeirs herkænskuleg til að fá lífeyrissjóði að borðinu Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. september 2011 18:45
Seðlabankinn vill fá helstu lífeyrissjóði landsins að samningaborðinu í gjaldeyrisútboðum bankans, en þau eru forsenda afnáms gjaldeyrishaftanna. Ráðning Þorgeirs Eyjólfssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í starf verkefnisstjóra við afnám haftanna var meðal annars til að ná þessu markmiði. Gott gengi í gjaldeyrisútboðum er ein af forsendum þess að hægt verði að aflétta gjaldeyrishöftunum innan skynsamlegra tímamarka. Þau ganga þannig fyrir sig að Seðlabankinn býður í aflandskrónur erlendra eigenda og selur þær svo aftur hér innanlands gegn gjaldeyri, en draga þarf úr krónueignum útlendinga til þess að hægt sé að ráðast í almenna afléttingu haftanna. Á haustþingi var heimild fyrir höftunum framlengd til ársins 2013. Seðlabankinn gekk nýlega frá ráðningu Þorgeirs Eyjólfssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, í tímabunda stöðu verkefnisstjóra við afnám gjaldeyrishafta. Þorgeir sætti nokkurri gagnrýni eftir hrunið vegna fjárfestinga lífeyrissjóðsins en sjóðurinn tapaði að minnsta kosti fimmtungi eigna sinna. Þá fór Lífeyrissjóður verzlunarmanna ekki varhluta af gagnrýni vegna kostnaðarsamra boðsferða sem stjórnendur lífeyrissjóðanna fóru í á vegum bankanna fyrir hrun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar hefur ráðning Þorgeirs vakið blendin viðbrögð í Seðlabankanum. Einhverjir starfsmenn Seðlabankans hafa, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, gert athugasemdir við menntun hans og efast um hæfni hans og þekkingu til að gegna starfinu. Þorgeir er ekki hagfræðingur og hefur ekki reynslu af gjaldeyrishöftum en hann lauk gráðu í fjármálum frá Bifröst og lauk einnig stjórnendanámi frá Harvard-háskóla árið 1998. Heimildarmenn fréttastofu innan Seðlabankans segjast fagna ráðningu Þorgeirs og að um „strategíska" ráðningu sé að ræða. Þorgeir sé gamall reynslubolti úr lífeyrissjóðakerfinu, en hann stýrði Lífeyrissjóði verzlunarmanna í aldarfjórðung, og gjörþekki stjórnendur annarra sjóða og starfsumhverfi lífeyrissjóða, en Seðlabankinn legði á það áherslu að fá lífeyrissjóðina að samningaborðinu í gjaldeyrisútboðunum. Einn heimildarmaður sagði að lífeyrissjóðirnir væru stærstu fagfjárfestar á Íslandi og þeirra hegðun geti verið stefnumarkandi fyrir aðra fjárfesta, bæði innlenda og erlenda. „Fyrsti hluti þessa uppboðsferlis gekk út á að reyna að fá lífeyrissjóðina að borðinu. Menn voru að reyna að höfða til þeirra. Það verður erfitt að gera þetta nema aðilar eins og lífeyrissjóðirnir séu að vinna með okkur," sagði hann. Vonir stæðu til þess að með Þorgeir innanborðs myndi það ganga betur. Ekki náðist í Þorgeir Eyjólfsson við vinnslu fréttarinnar. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira