Fótbolti

PSG krækti í Draxler

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Draxler hefur leikið 27 landsleiki fyrir Þýskaland.
Draxler hefur leikið 27 landsleiki fyrir Þýskaland. vísir/getty
Þýski landsliðsmaðurinn Julian Draxler hefur gert fjögurra ára samning við Paris Saint-Germain.

Hann mun ganga til liðs við frönsku meistarana þegar félagaskiptaglugginn opnar í næsta mánuði, að því gefnu að hann standist læknisskoðun.

Draxler, sem er 23 ára, kemur til PSG frá Wolfsburg þar sem hann hefur leikið í rúmt ár.

Draxler er uppalinn hjá Schalke 04 og lék 170 leiki og skoraði 30 mörk fyrir liðið áður en hann færði sig um set til Wolfsburg í fyrra.

Wolfsburg hefur gengið illa á tímabilinu og situr í 13. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Draxler hefur leikið 13 deildarleiki á þessu tímabili en ekki tekist að skora.

Draxler hefur leikið 27 landsleiki fyrir Þýskaland og skorað þrjú mörk. Hann varð heimsmeistari með þýska liðinu í Brasilíu fyrir tveimur árum.

PSG er í 3. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 39 stig, fimm stigum á eftir toppliði Nice.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×