Lífið

Prince fann ástina á Youtube

myndir/getty
Bandaríski tónlistarmaðurinn Prince er fallinn fyrir bresku söngkonunni Delilah. Parið hefur þekkst í tvö ár en þau kynntust þegar Prince sá söngkonuna á Youtube og bauð henni í kjölfarið að vinna fyrir sig og syngja með sér á tónleikaferðalagi. Þau hafa ekki viljað opinbera ástarsambandið en það er á allra vörum þegar kemur að poppbransanum.

Prince, sem er 55 ára, er tvískilinn. Hann var giftur söngkonunni Mayte Garcia og síðar Manuelu Testolini sem sjá má á myndunum.

Skrollaðu neðst í grein til að sjá viðtal við Deliluh um samstarfið við Prince og þar sem hún syngur lagið Go sem söngkonan Chaka Khan er hvað þekktust fyrir.

Prince var giftur bakraddasöngkonunni Mayre Garcia árin 1996-1999.
Svo giftist hann Manuelu Testolini árið 2001 en þau skildu fimm árum síðar.
Prince féll fyrir Deliluh.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×