Erlent

Prestur grunaður um 59 kynferðisbrot

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Presturinn, Victor Arden Barnard.
Presturinn, Victor Arden Barnard.
Bandarískur prestur sem grunaður er um allt að 59 kynferðisbrot var handtekinn í Brasilíu á föstudaginn.

Maðurinn, sem heitir Victor Arden Barnard, er 53 ára og var eftirlýstur af lögreglunni í Bandaríkjunum fyrir að hafa kynferðislega misnotað tvær stúlkur sem voru í safnaði hans.

Barnard hafði síðast sést í fyrra í Raymond í Washington-fylki í Bandaríkjunum. Lögreglan lýsti eftir honum í kjölfar þess að hún lauk tveggja ára rannsókn á meintum kynferðisbrotum mannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×