Innlent

Prestum óheimilt að synja samkynja pörum

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Guðrún Karls Helgudóttir er ein presta og meðlima í Prestaráði Þjóðkirkjunnar sem lagði fram tillögu um að meina prestum að synja samkynja pörum um vígslu.
Guðrún Karls Helgudóttir er ein presta og meðlima í Prestaráði Þjóðkirkjunnar sem lagði fram tillögu um að meina prestum að synja samkynja pörum um vígslu.
Kirkjuþing samþykkti mótatkvæðalaust að opinberum embættismönnum þjóðkirkjunnar er óheimilt að synja tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar þeirra.

Tillagan var flutt af Guðrúnu Karls Helgudóttur, Guðbjörgu Arnardóttur, Ragnheiði Ástu Magnúsdóttur, Vigfúsi Bjarna Albertssyni og Höllu Halldórsdóttir sem eru öll þjónandi prestar og stjórnarfólk í Prestafélagi Íslands. Tillaga þeirra var að Kirkjuþing ályktaði að opinberum embættismönnum þjóðkirkjunnar sé ekki heimilt að synja tveimur einstaklingum um hjónavígslu á grundvelli kynhneigðar. Kirkjuþing líti á það sem mismunun og ekki í anda kærleika Krists að neita fólki um þjónustu á þeim forsendum. Í greinargerð með tillögunni segir að allir einstaklingar á Íslandi njóti stjórnarskrárvarins frelsis til að fylgja eigin samvisku.

Þar hafi prestar þjóðkirkjunnar ekki ríkara frelsi en aðrir opinberir starfsmenn eða aðrir þegnar þessa lands. Hart hefur verið tekist á um hjónavígslu hinsegin fólks innan kirkjunnar síðustu ár. Samkynhneigðir hafa ekki haft sömu réttindi og gagnkynhneigðir innan kirkjunnar því prestar hafa hingað til getað neitað að gifta samkynhneigða ef trúarleg sannfæring þeirra leyfir þeim það ekki. Guðrún sagði gagnrýni á presta þjóðkirkjunnar réttmælta í ljósi þess að Íslendingar vilji vera til fyrirmyndar í mannréttindabaráttu. „Það hefur líka verið réttmætt í ljósi þess að þjónusta prestanna krefst þess að þeir mæti hverjum einstaklingi á sama hátt og Jesús gerði, þ.e. í kærleika og virðingu fyrir manngildinu.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×